Markaðurinn
Sjáðu myndirnar: Tæplega 200 gestir mættu á morgunverðarveislu Innnes
Við hjá Innnes vorum með opið hús í dag 19. mars milli klukkan 9 og 12 hér í Korngörðum 3, Reykjavík.
Okkur langaði að kynna þær lausnir sem við erum með í boði fyrir morgunmatinn.
Við erum með gríðarlega fjölbreytt úrval af vörum og spennandi nýjungum sem henta jafnt hótelum, gistiheimilum, veitingastöðum og stofnunum sem vilja bjóða upp á aðlaðandi og hagkvæmar morgunverðarlausnir.
Það sem var meðal annars á boðstólnum var:
Brauð, croissant, vöfflur og sætabrauð í miklu úrvali
Hrærð egg, beikon og bakaðar baunir
Ostar, álegg, sneidd egg og sultur
Jógúrt og morgunkorn
Ferskir ávextir og grænmeti
Kaffi, safar og freyðivín
Gestum gafst tækifæri á að smakka vörur, kynna sér nýjungar og ræða við söluteymi Innnes um lausnir sem henta hverjum rekstri. Við viljum einnig þakka Bakó Ísberg sem lánaði okkur glæsilegan búnað sem er einmitt tilvalinn undir morgunverðinn.
Við erum gríðarlega þakklát fyrir alla þá sem kíktu á okkur og erum í skýjunum með frábæra mætingu, vel á annað hundrað manns mættu og gæddu sér á dýrindis veitingum sem voru í boði.
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni2 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Keppni6 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
















