Frétt
Salmonella í bananaflögum – Vinsamlegast takið vöruna strax úr umferð og hættið neyslu
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Tiger bananaflögum sem fyrirtækið Tiger flytur inn vegna salmonellu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska hraðvirðvörunarkerfið RASFF um matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Tiger
- Vöruheiti: Banana chips
- Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 16.09.2021
- Lotunúmer: 8008634
- Nettómagn: 125 g
- Geymsluskilyrði: Á ekki við
- Framleiðsluland: Filippseyjar
- Innflytjandi: Tiger, Laugavegi 13 101 Reykjavík
- Dreifing: Tiger, Laugavegi 13 101 Reykjavík
Neytendum sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í Tiger þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar www.flyingtiger.com
„Vinsamlegast takið vöruna strax úr umferð og hættið neyslu“, segir í
fréttatilkynningu frá Tiger.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or23 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi






