Vertu memm

Markaðurinn

Rekstur í Norðurfirði á Ströndum – Einstakt tækifæri – Kaffi Norðurfjörður

Birting:

þann

Kaffi Norðurfjörður

Um er að ræða útleigu á rekstri veitingahússins Kaffi Norðurfjörður. Árneshreppur leitar að rekstraraðila sem getur hafið störf vorið 2024.

Samningur milli aðila er gerður til 3 ára og felur í sér starfstímabil sem er 4-6 mánuðir á ári samkv. samkomulagi.

Áhugasamir sendi umsókn á netfangið [email protected] ásamt tilboði í rekstur, hugmyndum um fyrirkomulag reksturs og upplýsingum um rekstraraðila.

Kaffi Norðurfjörður

Hafið samband

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2024.

Nánari upplýsingar og skoðun á eigninni veitir oddviti á [email protected] eða í 451 4001/847 2819 (kl. 13:00-17:00).

Meira um Kaffi Norðurfjörður

Kaffi Norðurfjörður er veitingahús staðsett í þorpinu sem ber sama nafn. Það var stofnað 2008 og er í rekstrarleigu sveitarfélagsins Árneshrepps á Ströndum á Vestfjörðum.

Salurinn er um 50fm með borðum og stólum. Frábært útsýni er úr kaffihúsinu til sjávar yfir höfnina og út á fjörðinn.

Kaffi Norðurfjörður

Eldhúsið er með öllum nauðynlegum tækjum (ísskápar, bakstursofnar, helluborð, frystikistur, uppþvottavél, bjórkranar).

Úti er pallur þar sem hægt er að hafa borð fyrir nokkra gesti.

Búast má við mikilli umferð ferðafólks á sumrin sem ferðast um og gista á svæðinu og/eða eru að fara norður á Hornstrandir með Strandferðum, frá bryggju beint fyrir framan veitingahúsið. Einnig eru talsverðir möguleikar
tengdir viðburðaskipulagi.

Kaffi Norðurfjörður

Hægt er að fá vörur fjóra daga á viku með flutningabíl frá Reykjavik.

Lítil íbúð með 2 svefnherbergjum er innifalin í leigu á sömu hæð í sama húsi.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið