Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara verður haldinn í Hörpu, laugardagskvöldið 10. janúar 2026.
Fjöldi fagfólks vinnur endurgjaldslaust að undirbúningi kvöldsins og leggur metnað sinn í að skapa framúrskarandi upplifun sem um leið er
Upplýsingar um viðburð
Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara verður haldinn í Hörpu, laugardagskvöldið 10. janúar 2026.
Fjöldi fagfólks vinnur endurgjaldslaust að undirbúningi kvöldsins og leggur metnað sinn í að skapa framúrskarandi upplifun sem um leið er ein helsta fjáröflun Klúbbs matreiðslumeistara. Klúbburinn rekur Kokkalandsliðið og heldur keppni um Kokk ársins, auk fjölda annarra verkefna sem miða að því að efla matarmenningu okkar Íslendinga.
Tveir íslenskir veitingastaðir hafa komist í úrslit í alþjóðlegum flokki National Fish & Chip Awards 2026, einu virtasta verðlaunaafhending Bretlands á sviði sjávarrétta. Þar keppa framúrskarandi fish
Upplýsingar um viðburð
Tveir íslenskir veitingastaðir hafa komist í úrslit í alþjóðlegum flokki National Fish & Chip Awards 2026, einu virtasta verðlaunaafhending Bretlands á sviði sjávarrétta. Þar keppa framúrskarandi fish and chips staðir víða að úr heiminum um titilinn International Fish & Chip Operator of the Year.
Úrslit verða kynnt í London 25. febrúar 2026 á Park Plaza Westminster Bridge hótelinu þar sem hundruðir gesta úr veitingageiranum koma saman. Einn veitingastaðurinn mun hljóta nafnbótina International Fish & Chip Operator of the Year 2026.
Snædís Xyza verður næsti fulltrúi Íslands í Bocuse d’Or Europe sem haldin verður í Marseille dagana 15. til 16. mars 2026.
Nánari upplýsingar hér.
Fleiri fréttir
Upplýsingar um viðburð
Snædís Xyza verður næsti fulltrúi Íslands í Bocuse d’Or Europe sem haldin verður í Marseille dagana 15. til 16. mars 2026.
Keppnin Kokkur ársins fer fram í IKEA í mars 2026.
Nákvæmur dagur hefur ekki verið ákveðinn, en verður auglýstur síðar. Að jafnaði fer keppnin fram á laugardegi og forkeppnin nokkrum dögum
Upplýsingar um viðburð
Keppnin Kokkur ársins fer fram í IKEA í mars 2026.
Nákvæmur dagur hefur ekki verið ákveðinn, en verður auglýstur síðar. Að jafnaði fer keppnin fram á laugardegi og forkeppnin nokkrum dögum áður.
Norðurlandakeppnirnar Nordic Chef, Nordic Chef Jr., Nordic Waiter og Nordic Green Chef verða haldnar dagana 22.–24. mars í Herning í Danmörku.
Meðfylgjandi mynd er frá Norðurlanda keppninni árið 2022,
Upplýsingar um viðburð
Norðurlandakeppnirnar Nordic Chef, Nordic Chef Jr., Nordic Waiter og Nordic Green Chef verða haldnar dagana 22.–24. mars í Herning í Danmörku.
Meðfylgjandi mynd er frá Norðurlanda keppninni árið 2022, sjá nánar hér. Mynd: Brynja Kr Thorlacius
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 19.–21. apríl 2026 í Svíþjóð, þar sem nemendur sýna hæfni sína í matargerð og framreiðslu á hæsta stigi.
Fréttayfirlit
Upplýsingar um viðburð
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu fer fram dagana 19.–21. apríl 2026 í Svíþjóð, þar sem nemendur sýna hæfni sína í matargerð og framreiðslu á hæsta stigi.
Worldchefs, áhrifamestu samtök matreiðslumanna í heiminum, verða með ráðstefnu, sýningu og keppni sem fram fer dagana 16.–19. maí 2026 í Newport í Wales.
Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Pasture, Passion,
Upplýsingar um viðburð
Worldchefs, áhrifamestu samtök matreiðslumanna í heiminum, verða með ráðstefnu, sýningu og keppni sem fram fer dagana 16.–19. maí 2026 í Newport í Wales.
Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Pasture, Passion, Plate“, sem heiðrar ferðalag matarins frá uppruna til fullbúins réttar og undirstrikar hvernig matur tengir okkur öll – frá bónda til borðs, yfir landamæri og menningarheima.
Um 1.000 kokkar frá 110 löndum sækja ráðstefnuna, ásamt 30 alþjóðlegum fyrirlesurum og sérfræðingum úr atvinnulífinu. Þá verður jafnframt sýning 200 nýsköpunarfyrirtækja og sýnenda, og búist er við að viðburðurinn laði að um 6.000 þátttakendur víðs vegar að úr heiminum.