Frétt
Ólöglegt varnarefni í tahini
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Himnesku lífrænu hvítu tahini sem Aðföng flytur inn. Ólöglegt varnarefni (etýlen oxíð) sem bannað er að nota í matvælum greindist í tahini. Fyrirtækið innkallar nú lotuna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Matvælastofnun fékk upplýsingar í gegnum RASFF viðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður og frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur sem fékk tilkynningu um innköllun frá Aðföngum.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
Vörumerki: Himneskt
Vöruheiti: Lífrænt Hvítt Tahini
Strikamerki: 5690350060028
Nettómagn: 250 g
Best fyrir dagsetning: 31.05.2023
Lotunúmer: L3220112
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík
Dreifing: Bónus, Hagkaup, Stórkaup og Kaupfélag Skagfirðinga.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Mynd: aðsend
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




