Frétt
Ólöglegt litarefni í pálmaolíu
Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af pálmolíu Nina palm oil sem fyrirtækið Lagsmaður ehf. flytur inn og selur í sinni verslun Fiska.is. Fyrirtækið hefur innkallað pálmolíuna af markaði með aðstoð heilbrigðiseftirlitsins HEF. Innköllun er vegna þess að það greindist í vörunni ólöglegt litarefni Súdan red sem er bannað að nota í matvælaframleiðslu.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Nina
- Vöruheiti: Palm oil 500ml
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
- Best fyrir / Lotunúmer: 03/2024 – 2022.2608
- Framleiðsluland: Gana
- Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
- Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, Kópavogur.
Mynd: Fiska.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




