Markaðurinn
Ölgerðin sækir ekki vatnið sitt yfir lækinn
Hvenær er íslenskt íslenskt og hvenær ekki? Ölgerðin hefur fengið fyrirspurnir um Kristal vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um innflutt sódavatn, sem fjölmargir hafa talið íslenskt.
Af því tilefni er rétt að benda á að Kristall er eins íslenskur drykkur og íslenskir drykkir verða. Raunar er langstærsti hluti drykkjarvara sem Ölgerðin selur íslensk framleiðsla með íslenskum hráefnum þar sem íslenska vatnið spilar lykilhlutverk, enda leitun að betra vatni.
Þannig vita flestir að íslensku vörumerkin okkar eru að sjálfsögðu framleidd hér á landi, eins og Egils Appelsín, Kristall og Floridana safar, en kannski vita færri að drykkir á borð við þá sem koma frá PepsiCo og Carlsberg eru líka íslensk framleiðsla, framleiddir í samstarfi við birgja okkar. Strangar gæðakröfur eru gerðar frá þessum aðilum og auðvelt er að sjá hvaða vörur eru framleiddar hér á landi.
Ölgerðin ætlar að halda áfram að efla framleiðslustarfsemi hér heima, enda er betra fyrir umhverfið að framleiða vörur heima og neytendur geta treyst því að í vörunni sé íslenskt hráefni. Það er líka betra fyrir atvinnulífið og samfélagið. Okkar bjargfasta trú er að neytendur geri auknar kröfur um rekjanleika, að vita hvaðan varan kemur og hvað í henni er. Hjá okkur liggur það hreinlega fyrir.
Umfjöllun um innflutt sódavatn hér.
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




