Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
Nýr veitingastaður, OAK, mun brátt opna í húsnæði við Þverholt 1 í Mosfellsbæ þar sem Arion banki var áður til húsa. Um helgina fór fram reynsluopnun þar sem gestum gafst kostur á að kynnast staðnum og matseðlinum áður en formleg opnun fer fram.
Að baki verkefninu standa matreiðslumeistararnir Þórður Þrastarson og Sigurjón Ingi Úlfarsson, sem hafa rekið veitingastaðinn Galito á Akranesi undanfarin 22 ár, að því er fram kemur í Mosfellingi.
Framkvæmdir við staðinn hafa staðið yfir í nokkra mánuði og tekið lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. Upphaflega stóð til að opna fyrr á árinu, en verkefnið varð umfangsmeira eftir því sem leið á framkvæmdirnar.
Matseðill OAK verður fjölbreyttur og ætlaður breiðum hópi gesta. Á daginn verður áhersla á hádegisverð fyrir íbúa og starfsfólk í nærumhverfinu, en á kvöldin verður boðið upp á fjölbreytta rétti. Þá verður einnig lögð áhersla á take away-rétti.
Matseðillinn ber þess merki að eigendurnir vilji höfða til breiðs hóps gesta. Þar má meðal annars finna smárétti á borð við skelfisksúpu, nautatataki og túnfisk ceviche, auk deilirétta eins og ostaplatta og bakaðs brie. Þá eru einnig á boðstólum fiskréttir, lamb, nautakjöt og grænmetisréttir fyrir þá sem kjósa jurtafæði.
Pítsur skipa einnig stóran sess á matseðlinum, með úrvali sem spannar allt frá klassískri Margherita yfir í humarpítsu og burrata-pítsu. Auk þess eru hamborgarar, bistróréttir, taco-réttir og fjölbreytt úrval eftirrétta á boðstólum, sem gefur til kynna að OAK ætli sér að vera fjölskylduvænn staður þar sem flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Nafn staðarins vísar til reyktrar eikar sem setur svip sinn á innréttingarnar, en allar innréttingar hafa verið sérsmíðaðar. Formleg opnun staðarins er fyrirhuguð á næstu dögum.
Myndir og myndband: Facebook / Oak Restaurant
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt4 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann






