Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður í Norræna húsinu
AALTO Bistro er nýr og spennandi veitingastaður sem verður opnaður í Norræna húsinu 1. maí næstkomandi undir dyggri stjórn og listfengi Sveins Kjartanssonar matreiðslumeistara og sjónvarpskokks. Sveinn sem jafnframt er eigandi veitingahússins Borðstofan, segir í samtali við veitingageirinn.is að Borðstofan verður áfram opinn í núverandi mynd, enginn breyting þar á.
AALTO Bistro markar sérstöðu þar sem farnar verða ótroðnar og spennandi slóðir í matreiðslu og við nýtingu á óhefðbundnu hráefni, sem og daðrað við skandinavíska matargerð undir miðevrópskum áhrifum.
Á AALTO Bistro verður á boðstólum hollur og ljúffengur matur úr fersku gæðahráefni. Einnig verður gott úrval af heimabökuðum kökum og öðru spennandi sætmeti með kaffinu allan daginn.
Gestum og gangandi gefst því tækifæri á að njóta til hins ítrasta alls þess sem Norræna húsið hefur upp á að bjóða; bókmenntir, myndlist, matargerð og menning í sinni fjölbreyttustu mynd.
Veitingastaðurinn AALTO Bistro dregur nafn sitt af hönnuði Norræna hússins, hinum heimsþekkta finnska arkitekt, Alvar Aalto (1898 – 1976), og vill þannig heiðra minningu hans og arfleifð.
Norræna húsið er eitt af hans seinni verkum og er líkt og falinn demantur á meðal þekktari verka hans. Húsið ber mörg höfundareinkenni Aaltos. Þau sjást einna best í bláu flísunum á þaki hússins, í hvelfingu bókasafnsins og í hinni miklu notkun á hvítum lit, flísum og við í allri byggingunni.
Alvar Aalto hannaði einnig húsgögn í flestallar byggingar sínar og í Norræna húsinu eru öll húsgögn og ljós hönnuð af honum.
Myndir: af facebook síðu AALTO Bistro.
![]()
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn6 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt2 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Keppni7 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn5 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni6 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september





