Starfsmannavelta
Sveinn Kjartansson hættir á AALTO Bistro í Norræna húsinu – Sveinn: „…nú er komið að þáttaskilum. Mér bauðst heillandi tækifæri…“
„Ég hef staðið vaktina á veitingahúsinu mínu, AALTO Bistro í Norræna húsinu, í rúm fimm ár. Það hefur átt hug minn og hjarta allan tímann. Því þetta hefur verið afar skemmtilegur tími og gefandi,”
segir Sveinn Kjartansson matreiðslumeistari í samtali við veitingageirinn.is.
Sveinn hefur vakið hefur mikla athygli fyrir sjónvarpsþætti sína eins og Fagur fiskur og Nautnir norðursins sem hafa verið sýndir á RÚV og á hinum norðurlöndunum.

AALTO Bistro hefur markað sérstöðu í matreiðslu og við nýtingu á óhefðbundnu hráefni hér á Íslandi. Sveinn hefur farið ótroðnar og spennandi slóðir , sem og daðrað við skandinavíska matargerð undir miðevrópskum áhrifum við matargerð sína á AALTO Bistro.
„En nú er komið að þáttaskilum. Mér bauðst heillandi tækifæri að verða forstöðumaður matar,- og veitingasvið Seðlabanka Íslands og þáði það með þökkum, enda heillandi og spennandi áskorun,”
segir Sveinn og bætir við:
„Það verður tregablandin þáttaskil þegar ég hætti í Norræna húsinu, þessu einstaklega fallega húsi í Vatnsmýrinni og að kveðja allt það frábæra starfsfólk sem þar starfar. Ég er líka afar snortinn yfir því góða starfsfólki sem starfar með mér á AALTO Bistro. Þetta er samhentur hópur sem mun vinna með hjartanu með mér allt til loka ágúst.
Þá mun ég fyrst kveðja þessa perlu hér í Vatnsmýrinni þegar einhver góður veitingamaður kemur og tekur við keflinu af mér.”
Myndir: facebook / Aalto bistro
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni6 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Frétt3 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn6 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni




