Vín, drykkir og keppni
Nýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga

F.v. Einar Örn Sigurdórsson framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags og Hafþór Úlfarsson deildarstjóri Markaðsdeildar hjá SS
Reykjavík Brewing Company hefur kynnt til sögunnar nýjan bjór sem þróaður er með einn þekktasta rétt Íslendinga í huga. Um er að ræða svonefndan Lite Pylsubjór sem fyrirtækið hefur unnið að í samstarfi við SS, en bjórinn er sérstaklega hannaður til að para við íslenska pylsu.
Í tilkynningu frá brugghúsinu kemur fram að markmiðið hafi verið að skapa léttan og aðgengilegan lagerbjór sem styður við bragð pylsunnar fremur en að yfirgnæfa það. Niðurstaðan er 4,4 prósenta vínarlager sem er glúteinlaus, tær og léttur í munni, með fersku yfirbragði og hreinu eftirbragði.
„Íslenska pylsan hefur lengi skipað sérstakan sess í hjörtum þjóðarinnar og við erum afskaplega montin af því að vinna með þessu þjóðþekkta vörumerki og skapa eitthvað nýtt og skemmtilegt,“
segir meðal annars í tilkynningunni.
Að sögn framleiðenda er bjórinn hugsaður sem eðlilegur fylgifiskur klassískrar pylsu, þar sem ferskleiki og léttleiki spila lykilhlutverk. Með því fái slagorðið „ein með öllu“ nýja merkingu.
Lite Pylsubjórinn er væntanlegur á markað í byrjun sumars.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni3 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Frétt5 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Frétt1 dagur síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
-
Markaðurinn8 klukkustundir síðanEldur er aftur fáanlegur fyrir ostunnendur
-
Markaðurinn5 klukkustundir síðanDala Auður lyftir pizzunni á nýtt stig




