Vín, drykkir og keppni
Bjór framleiddur með gulum baunum! Gulum baunum…?
RVK Bruggfélagið ætlar að taka slaginn og vona að sumarið sé lokins á leiðinni. Nýjasti Sumarbjórinn þeirra er á leiðinni og heitir ORA Sumarbjór og er framleiddur með gulum baunum!
Gulum baunum…?
Það er von þú spyrjir, en jú gular baunir eru algjör snilld í bjór segir í tilkynningu frá RVK Bruggfélaginu. Fjölmörg heimsfræg nöfn í bransanum sem nota gular baunir sem restin af veröldinni þekkir undir nafninu maískorn.
Maískorn eru einkar góð leið til að brugga bragðgóðan bjór sem er um leið léttur og virkilega auðveldur til að njóta. Það lá því beint við að eigendur höfðu samband við ORA með að vinna með þeim þennan glænýja sumarsmell.
Og viti menn, hér er hann kominn. Í kunnuglegri dós sem enginn getur feilað á að sjá í Vínbúðum hins opinbera nú eftir helgina.
Þau sem vilja forskot á sæluna geta laumast í Skipholtið í dag og tryggt sér dósir fyrir sumarið á meðan birgðir endast. Hjalti Bruggmeistari og meistarakokkur ætlar líka að grilla maískorn seinnipartinn, en ORA Sumarbjórinn mun eflaust verða kokkabjór þessa grillsumars; eins og gular baunir fer hann virkilega vel með öllu.
Mynd: facebook / RVK Bruggfélagið
-
Keppni6 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt4 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Markaðurinn7 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni22 klukkustundir síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 klukkustundir síðanLíður að jólum




