Vertu memm

Íslandsmót iðn- og verkgreina

Nemakeppni KORNAX 2017 – Forkeppni – Skráning í fullum gangi

Birting:

þann

Kornax - LogoNemakeppni KORNAX fer fram í Hótel og matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi í stofu V207, 9.-10. mars nk.

Dómarar í keppninni verða:

  • Íris Björk Óskarsdóttir
  • Birgir Þór Sigurjónsson
  • Henry Þór Reynirsson
  • Sigurður E Baldvinsson, yfirdómari

Keppnisfyrirkomulag

1 stór brauðtegund
500 – 800 gr. hvert brauð.
10 stk.
Engar nánari skilgreiningar, frjálsar aðferðir.

1 smábrauðstegund
70- 80 gr. hvert smábrauð.
30 stk.
Ekki leyft að rúlla smjörlíki í deigið.  Að öðru leyti frjáls aðferð.

3 vínarbrauðstegundir
40 -70 gr. hvert vínarbrauð eftir bakstur.
20 stk. af tegund.
Frjáls úrvinnsla úr afgangi af deigi, þó að hámarki úr 500 gr. af deigi.

Skraut stykki
Lágmark 50 cm hæð – hámark 140 cm
Frjálst þema.

Uppstilling á fyrirfram dúkað borð í björnsstofu.
Stærð ca, 120 x 80 cm. með hvítum dúkum.
Sérstök athygli skal vakin á því að ekkert annað en keppnisframleiðslan er leyfð á borði.

Tímaröðun keppenda verður tilkynnt fyrir keppni.

Skráning

Skráning og fyrirspurnir varðandi keppnina má senda á Ásgeir kennara: [email protected] eða Stefán Gauk: [email protected]  eða í síma : 8448941

Skrá verður þátttöku fyrir 1. mars.

Keppnisreglur í forkeppninni eru:

  • Keppendur hafa 5 klst. sem þeir mega nota að vild.
  • Ath. allt mjöl og korn skal vera frá KORNAX og verður hveitið ásamt öllum grunnhráefnum á keppnisstað.
  • Engar mjölblöndur (brauðamix) eru leyfðar.
  • Keppendum er heimilt að nota hjálparefni svo sem gernæringarefni, súrdeig, litarefni o.þ.h. að höfðu samráði við dómara.
  • Keppendum er heimilt að koma með slík efni með sér ef þau eru ekki til á keppnisstað en tilkynna skal um slíkt fyrirfram.
  • Öll deig skulu vera fyrirfram útreiknuð og nákvæmlega löguð. Deig afgangar mega ekki vera meiri en 250 grömm í hverri deigtegund.  Reiknuð eru 5 refsistig fyrir hver byrjuð 250 grömm eftir það.
  • Keppendur verða að hafa lokið öllu þ.m.t. uppstillingu á 5 klst.
  • Reiknuð eru 5 refsistig á hverjar byrjaðar 5 mínútur sem keppandi fer umfram 5 klukkustundir (keppandi verður þó stöðvaður eftir 15 mín.)
  • Þegar keppandi hefur lokið öllu skal hann láta dómara vita.
  • Keppendur mega koma með útrúllað skrautdeig, tilbúið til að skera út, fyllingar og glassúr.

Í framhaldi fara þrír til úrslita og keppa í Laugardagshöll þar sem Íslandsmót iðn- og verkgreina fara fram.

Veglegir vinningar verða í boði.

Sigurvegarinn í nemakeppninni fær sæti í landslið bakara sem fara saman og keppa í Noregi fyrir hönd Íslands.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið