Vertu memm

Markaðurinn

„Neglan“ komin í borðið hjá Hafinu: nýr fiskréttur í samstarfi við Aftureldingu

Birting:

þann

„Neglan“ komin í borðið hjá Hafinu: nýr fiskréttur í samstarfi við Aftureldingu

Hafið Fiskverslun hefur kynnt til leiks nýjan og metnaðarfullan fiskrétt sem ber nafnið „Neglan“, þróaðan í samstarfi við meistaraflokk kvenna hjá Aftureldingu í handbolta. Um er að ræða rétt sem sameinar hollustu, kraft og skýra hugmyndafræði, þar sem hráefni og næring spila lykilhlutverk.

Í tilkynningu frá Hafinu Fiskverslun segir að „Neglan“ sé þorskréttur þar sem fiskurinn er maríneraður í black garlic með hvítlauk og kryddjurtum. Útkoman er bragðmikill réttur með ríkum hvítlauks- og kryddjurtatónum, ásamt mildri sætu frá tómötum sem jafnar heildina vel út.

Rétturinn er hannaður af leikmönnum Aftureldingar og endurspeglar bæði þarfir og metnað ungra íþróttakvenna. Samsetningin er úthugsuð með næringu og orku í huga og á að henta jafnt innan sem utan vallar.

„Neglan“ samanstendur af þorski, kínóa, spínati, kirsuberjatómötum, döðlum og blaðlauk. Að auki er rétturinn toppaður með mozzarellakúlum sem, að sögn stelpnanna sjálfra, setja punktinn yfir i-ið.

Að mati Hafsins Fiskverslunar nýtur rétturinn sín sérstaklega vel með brokkolísalati og tartarsósu frá húsinu, samsetning sem sögð er „algjör negla“ sem hitti beint í mark.

Með „Neglunni“ heldur Hafið áfram að þróa nýjar og spennandi leiðir til að færa ferskan fisk nær neytendum, með áherslu á gæði, nýsköpun og samstarf við öfluga aðila úr íslensku samfélagi.

Gæðavörur sem henta mötuneytum og veitingastöðum

„Það eru páskar fram undan og allt til hjá okkur fyrir veitingageirann fyrir páskana, humar, humarsúpa, rækjur, reyktur og grafinn fiskur og borðið auðvitað fullt af alls kyns góðgæti fyrir sælkera,“

segir Bjarki Gunnarsson, verslunarstjóri í Hlíðasmára.

Hafið býður upp á einstaklega gott vöruúrval fyrir veitingageirann. Þeir sem reka mötuneyti í skólum og fyrirtækjum geta nálgast vörubækling Hafsins hér.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið