Markaðurinn
Mötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
Meðalheildarlaun félagsfólks í helstu starfsgreinum innan MATVÍS voru á bilinu 816 til 978 þúsund krónur síðastliðið haust. Þetta eru niðurstöður kjarakönnunar félagsins sem lögð var fyrir í september 2025.
Í tilkynningu frá MATVÍS kemur fram að félagið fær reglulega fyrirspurnir um laun og gefur þessi samantekt góða mynd af stöðunni eins og hún var þegar könnunin var lögð fyrir.
Hæst voru meðallaunin hjá bökurum, þar sem heildarlaun námu að jafnaði 978 þúsund krónum. Næst á eftir komu starfsmenn í mötuneytum með 918 þúsund krónur og í veitingahúsum með 867 þúsund krónur. Þá voru meðallaun í hótelum og gististöðum 823 þúsund krónur og í kjötvinnslu 816 þúsund krónur að jafnaði.
Dagvinnulaun voru hæst í mötuneytum, 4.940 krónur á tímann, en lægst í veitingahúsum, 3.781 króna. Yfirvinna vegur víða þungt í heildarlaunum, til dæmis í veitingahúsum þar sem yfirvinnulaun námu að jafnaði 288 þúsund krónum.
-
Keppni2 dagar síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni2 dagar síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanKokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
-
Keppni1 dagur síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni11 klukkustundir síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
-
Markaðurinn2 dagar síðanNý hnífataska frá Beittum hnífum
-
Markaðurinn9 klukkustundir síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina






