Keppni
Misstir þú af keppnisborði Kokkalandsliðsins í Smáralindinni? Ef svo er þá getur þú séð það á morgun 8. okt.
Kokkalandsliðið æfir nú stíft fyrir Ólympíuleika í matreiðslu sem fram fara í Þýskalandi síðar í mánuðinum. Önnur keppnisgreinin er kalt borð eða Culinary Art Table þar sem sýndir eru yfir 30 réttir.
Borðið er sannkallað listaverk þar sem hvert smáatriði hefur verið hugsað í þaula. Liður í æfingarferlinu er að flytja réttina milli staða þannig að þeir haldi fullkomnu útliti sínu enda þurfa þeir að vera til sýnis í margar klukkustundir á keppnisstað. Landsmönnum gafst kostur á að skoða borðið þegar því var stillt upp til sýnis í Smáralind síðasta laugardag 1. október. Eftir viðburðinn í Smáralind var Þráinn Freyr Vigfússon, faglegur framkvæmdastjóri liðsins hæstánæður og sagði það hafi gengið vonum framar að koma kalda borðinu upp. Einnig að það hafi verið frábært og hvetjandi fyrir liðið að finna fyrir áhuga og stuðningi allra sem mættu. Því mun liðið endurtaka leikinn á morgun laugardaginn 8. október kl. 12-17.
Ólympíuleikarnir í matreiðslu, IKA Culinary Olympics, er stærsta matreiðslukeppni landsliða í heiminum og jafnframt sú mest krefjandi. Keppnin á sér yfir 100 ára sögu og er haldin á fjögurra ára fresti. Í keppninni mætast margir af færustu kokkum heims frá um 50 löndum. Liðin koma með hluta af hráefni með sér að heiman, auk ýmissa tækja og tóla sem þarf á keppnisstað. Keppt er í tveimur greinum, köldu borði 23. október og heitum mat 25. október. Það lið sem nær hæstu samanlögðum stigum verður Ólympíumeistari.

Landsmönnum gafst kostur á að skoða borðið þegar því var stillt upp til sýnis í Smáralind síðasta laugardag 1. október.
Kokkalandsliðið sem hefur æft fyrir keppnina síðustu 18 mánuði er skipað færustu matreiðslumönnum landsins, 16 talsins:
Hafliði Halldórsson framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon faglegur framkvæmdastjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði, Björn Bragi Bragason forseti KM/framkvæmdastjórn, Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri, Jóhannes Steinn Jóhannsesson liðsstjóri, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson, Axel Clausen, Garðar Kári Garðarsson, Hrafnkell Sigríðarson, Atli Þór Erlendsson, Sigurður Ágústsson, Georg Arnar Halldórsson og María Shramko.
Meðfylgjandi myndir eru frá þegar Kokkalandsliðið sýndi keppnisborðið í Smáralind síðasta laugardag 1. október.
Myndir: kokkalandslidid.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanArnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
-
Markaðurinn5 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni2 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Frétt3 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanJapanskt gin sækir fram þrátt fyrir samdrátt í áfengissölu
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Vín, drykkir og keppni18 klukkustundir síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga






