Freisting
Mikill fengur í að fá frægan matreiðslumann til að miðla af reynslu sinni
Þann 2 febrúar síðastliðinn var haldið námskeið um Norræna eldhúsið í Hótel og- matvælaskólanum í Kópavogi.
Bocuse d´Or Akademían á Íslandi í samstarfi við Iðuna fræðslusetur stóðu fyrir námskeiði þar sem Mathias Dahlgren matreiðslumeistari á Grand Hótel í Stokkhólmi var kennari ásamt aðstoðarmanni.
Mathias er vel þekktur matreiðslumeistari, en hann varð sigurvegari Bocuse d´Or 1997 og er margverðlaunaður Chef.
Mathias rekur tvo veitingastaði í Svíþjóð í Stokkhólmi en báðir veitingastaðirnir eru með Michelin stjörnu – 1 michelin stjarna fyrir Matbaren og 2 michelin stjörnur fyrir Matsalen.
Á námskeiðinu var miðað að því að efla þekkingu, leikni og hæfni matreiðslumanna í Norrænni matargerð.
Námskeiðið skiptist í fyrirlestur frá kl. 10.00 12.00 þar sem fjallað var um upphaf Norræna eldhússins, stöðu þess og framtíðarsýn. Eftir hádegi eða frá kl. 13.30 16.30 voru verklegar æfingar.
Einnnig fengu þáttakendur innsýn í að setja saman rétti og nýta Norrænt hráefni til matargerðar og greina tengsl á milli matarhefða á Noðurlöndunum.
Þá sýndi Mathias fram á sérsöðu norrænna matreiðsluhefða.
Nemendur í Hótel og matvælaskólanum buðu uppá hefðbundinn plokkfisk með rúgbrauði og smjöri í hádegismat og nýtti Mathias sér það og lagaði eftir hádegið plokkfisk á framandi hátt.
Voru þáttakendur mjög ánægðir með námskeiðið og fannst mikill fengur í að fá þennan fræga matreiðslumann til að miðla af reynslu sinni um norræna eldhúsið.
Mathias var einnig afskaplega ánægður með þáttakendur og allan aðbúnað í skólanum og miðlaði glaður af reynslu sinni.
Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri námskeið verði í framtíðini af þessum toga.
Mathias er einn af forsprökkum Norræna Eldhússins og er mikilsmetinn af kollegum sínum.
Heimasíður hjá veitingastöðum Mathias:
www.mathiasdahlgren.com
www.grandhotel.se
/Ólöf Jakobsdóttir
www.bocusedor.is

-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Keppni7 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“



