Frétt
Metskráning gistinátta á hótelum á Norðurlandi
Aldrei hafa skráðar gistinætur á hótelum verið fleiri í júní á Norðurlandi en á þessu ári. Alls voru þær 54.236, sem er 8% fjölgun frá síðasta ári. Nýting hótelherbergja hefur ekki verið betri og helst stöðug á milli ára sem er sérstaklega jákvætt í ljós þess að hótelum fjölgaði um tvö og herbergjum um 71. Þróunin í nýtingu herbergja í þessum mánuðum hefur verið á uppleið síðustu ár, ef frá eru talin árin 2020 og 2021 vegna heimsfaraldurs, og ljóst er að tækifærin til að gera enn betur eru til staðar.
Þegar tölur fyrir maí mánuð eru skoðaðar sést að sumartímabilið er að lengjast, sem er afar jákvætt. Skráðum gistinóttum fjölgaði um 27% frá síðasta ári og voru samtals 39.883 talsins. Eins og sést hér að neðan er fjölgunin veruleg frá því sem var fyrir heimsfaraldur og það sama má segja um júnímánuð.
Sem fyrr segir er þessi aukning í maí-mánuði jákvæð með tilliti til þess markmiðs ferðaþjónustunnar á Norðurlandi að jafna árstíðarsveifluna eins og kostur er. Vísbendingar eru um að sumartímabilið sé einnig að teygja sig lengra inn í september og október, sé miðað við síðasta ár og góða bókunarstöðu á þessu ári, samkvæmt upplýsingum frá samstarfsfyrirtækjum MN.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn1 dagur síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




