Markaðurinn
Mata hf. tekur við dreifingu á Nordic Wasabi
Mata hf. hefur tekið við dreifingu á Nordic Wasabi frá Jurt ehf. Samstarfið er þegar komið til framkvæmda og varan nú aðgengileg í gegnum dreifikerfi Mata hf.
Nordic Wasabi er íslenskt hágæða wasabi, ræktað í hátæknigróðurhúsum á Egilsstöðum með sjálfbærri vatnsræktun. Framleiðslan er rekin samkvæmt New Nordic Food Manifesto þar sem ferskleiki, hreinleiki og sjálfbærni eru höfuðatriði. Ólíkt því „wasabi“ sem flestir þekkja, sem er að jafnaði blanda af piparrót, sinnep og grænum matarlit, er Nordic Wasabi alvöru wasabi, ferskt og óblandað.
„Nordic Wasabi passar vel inn í vöruúrval okkar og við hlökkum til að kynna vöruna fyrir viðskiptavinum okkar.“
sagði Jóhann Steinn Eggertsson, framkvæmdastjóri Mata hf.
„Við erum ánægð með að eiga Mata hf. sem dreifingaraðila og hlökkum til góðs samstarfs,“
sagði Ragnar Atli Tómasson, CEO Jurt ehf.
-
Keppni3 dagar síðanÍsak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
-
Keppni2 dagar síðanÞrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður
-
Keppni3 dagar síðanHver hreppir titilinn Kokkur ársins 2026? Bein útsending
-
Keppni23 klukkustundir síðanSkráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
-
Markaðurinn2 dagar síðanNý hnífataska frá Beittum hnífum
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanMötuneyti skera sig úr með hæstu dagvinnulaunin
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanSupermeals kynnir nýja eiginleika sem einfalda birtingu matseðla og straumlínulagaða skráningu viðskiptavina






