Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Lúxushótelið Höfði Lodge opnar við Grenivík í Eyjafirði

Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein hefja byggingu á lúxushóteli á Þengilhöfða í Eyjafirði
Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein, fyrrverandi landsliðsmenn á skíðum og eigendur Viking Heliskiing og Scandic Guides, eru komnir vel af stað með risaverkefni í heilsársferðaþjónustu.
Í samstarfi við erlenda fjárfesta þá eru þeir að hefja byggingu á glæsilegu lúxus hóteli rétt við Grenivík í Eyjafirði, að því er fram kemur í Vikublaðinu á Akureyri.
Hótelið, sem hefur fengið nafnið Höfði Lodge, verður 5500 fm. að stærð með 40 herbergjum, þar af fjórum svítum, ásamt bar, veitingastað, heilsurækt, funda- og ráðstefnusal og allri annarri þjónustu.
Í samtali við Vikublaðið segir Björgvin að verkefnið gangi vel en vegaframkvæmdir að fyrirhuguðu hótelinu eru hafnar.
„Þetta gengur mjög vel, við erum bara að klára veginn núna og sprengjum klöppina vonandi núna í næstu viku,“
segir Björgvin.
Hótelið mun rísa fyrir ofan 50 metra háan klettavegg á Þengilhöfða sem gengur út í austanverðan Eyjafjörðinn. Þaðan er útsýnið stórbrotið samspil milli hafs og fjalla, með óhindrað útsýni til mynnis Eyjafjarðar og yfir á Tröllaskagann. Björgvin dregur heldur ekkert undan þegar hann segir að þeir félagarnir hafi fundið besta staðinn í Evrópu til að reisa hótel.
Tölvuteiknaðar myndir: hofdilodge.com
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanStórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
-
Markaðurinn4 klukkustundir síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Keppni4 dagar síðanJakob Alf stóð uppi sem sigurvegari
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft japanskt viskí á matseðli hjá Gordon Ramsay, kostar yfir fjórar milljónir króna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSkandinavísk matarupplifun vakti lukku á Siglufirði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍsak kokkur galdraði fram hátíðarmat fyrir áhöfn Björgúlfs EA 312
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanDwayne Johnson setur aukinn kraft í útrás Teremana
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanEyjafjarðarsveit semur við Snæbjörn matreiðslumeistara til 2029







