Frétt
Leiðbeiningar til veitinga- og gististaða vegna hámarksfjölda í hóp
Nú er sem kunnugt er búið er að herða kröfurnar vegna samkomubanns og hámarks fjöldi í hópum og hverju rými er 20 manns. Ferðamálastofa hefur í samvinnu við Embætti landlæknis og heilbrigðisráðuneytið unnið eftirfarandi leiðbeiningar. Munum einnig 2ja metra regluna.
- Hver salur er eitt rými, hægt er að skipta upp í fleiri rými sjá hér að neðan.
- Eldhús er rými.
- Matsalur, hægt er að skipta honum upp og þannig að það eru að hámarki 20 í hverju rým. T.d. 17 gestir og 3 þjónar
- Það má skipta sal þannig að alltaf séu auð borð í röð sem skipta salnum og búa þannig til lokað rými. Ef þessi leið er notuð skal tryggja að það séu tveir metrar á milli rýma.
- 2 metrar á milli borða/hópa.
- Fjölskyldur og hópar sem hafa verið í miklu samneyti áður geta setið við sama borð.
- Sér salerni fyrir hvert rými.
- Kokkar og starfsfólk í eldhúsi eiga að vera í eldhúsi og bera matinn fram að dyrum aðskildra rýma. Þar taka þjónar við.
- Kokkar og starfsfólk í eldhúsi eiga að hafa sér inngang og salerni.
- Spritt við inngang í sal og skilti sem segir fólkið að spritta sig á leið inn og leið út.
- Þvo mat- og vínseðla á milli gesta/borða.
- Tryggja þarf að ekki myndist örtröð í forstofu eða við inngang. Muna, tvo metrar á milli gesta.
- Á hverri vakt fara starfsmenn ekki á milli rýma.
- Hvert herbergi (gisting) er eitt rými.
- Ekki má bóka fleiri en ca 18 í gistingu nema vera búin að skipta matsal í fleiri rými.
Munum að við erum öll í þessu saman og þannig sigrum við.
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn5 dagar síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Markaðurinn5 dagar síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn4 dagar síðanFersk íslensk bláskel í allt sumar
-
Frétt3 dagar síðanLaunahækkanir skila sér í næstu útborgun
-
Keppni3 dagar síðanFyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
-
Markaðurinn4 dagar síðanYfirkokkur/Verkstjóri óskast
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




