Markaðurinn
Jógúrtkaka með hvítu súkkulaði
Dásamlega létt og einföld kaka sem hentar vel sem eftirréttur eða bara þegar manni langar. Stærðin á kökunni er ótrúlega hentug en úr henni fást 6-8 sneiðar. Ekki of stór, ekki of lítil!
Botn
200 g graham kex
100 g smjör
1 dl ristaður kókos
Fylling
250 ml rjómi
350 g grísk jógúrt
2 msk flórsykur
100 g hvítt súkkulaði
Setjið kexið í matvinnsluvél, myljið og setjið í skál. Setjið kókosinn í matvinnsluvél ef þið eruð með flögur annars bætið þið beint saman við kexmulninginn. Bræðið smjörið og blandið vel saman við kexið og kókosinn.
Takið 18 cm form, gott að setja bökunarpappír eða plastfilmu í botninn og setjið blönduna í botninn og þrýstið vel niður og með fram hliðum. Kælið í ísskáp meðan fyllingin er gerð.
Þeytið rjómann í einni skál, blandið saman grískri jógúrt og flórsykri í annarri og bræðið hvítt súkkulaði inn í örbylgju í þeirri þriðju.
Blandið þá saman þeytta rjómanum saman við grísku jógúrtina með sleikju. Hrærið í súkkulaðinu og passið að það sé allt bráðið, þá er gott að taka smá skammt af grísku jógúrtinni og rjómanum og blanda saman við súkkulaðið og bætið saman við í smá skömmtum þar sem súkkulaðið er heitt og blandan er köld. Blandið síðan öllu saman og hrærið vel. Hellið þá fyllingunni yfir kexbotninn og kælið í 3-4 klst minnst.
Takið kökuna varlega úr forminu og dreifið hindberjum eða jarðaberjum yfir. Þá er bara að bera hana fram!
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt4 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn7 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni3 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni18 klukkustundir síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Markaðurinn2 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís







