Freisting
Ísland í víking til Köben. Nordic Challenge 2009
Nú skyldi taka út afrakstur æfinga Hallgríms Friðriks ( www.fridrikv.is ) og Gunnars Karls ( www.dill.is ) fyrir keppina Nordic Challenge 2009 í Kaupmannahöfn sem fram fer í næstu viku.
Saman vorum við komnir, Stefán Viðarsson ( www.nordica.is ), Hákon Már Örvarsson (www.glo.is), Stefán Ingi Svansson(www.turninn.is), Sigurður Gíslason ( www.turninn.is ), Matthías Þórarinsson ( www.freisting.is ), Kjartan Marinó Kjartanson ( www.icelandairhotels.is ) til að gefa sitt álit á matnum.
Eftir smá spjall um liðnar keppnir var komið að fyrstu réttum en þeir félagar Hallgrímur Friðrik og Gunnar Karl koma til með að elda fyrir 7 manns, forrétt, aðalrétt og eftirrétt.
Einn af öðrum komu diskarnir úr eldhúsinu, mikið skoðað og hugmyndum velt fyrir sér og bragð og áferð metinn. Greinilega fagmenn í fremstu röð hér á ferð enda báðir með mikla reynslu og gaman að sjá íslenska eldhúsið í hávegum haft.
Eftir keyrslu var spjallað um matinn, uppbyggjandi gagnrýni um það sem betur mætti fara og auðvitað hrós á það sem gott er. Og trúið mér á þessum diskum var mikið af flottum atriðum og braðlaukarnir fóru beinlínis á flug!
Aðstoðarmaður Hallgríms er Bjarni Siguróli Jakobsson matreiðslunemi á Vox restaurant og aðstoðarmaður Gunnars er Ólafur Águstsson matreiðslunemi á Vox restaurant. Dómari Íslands verður Sigurður Friðrik Gíslason matreiðslumaður og veitingamaður í Turninum.
Meðal dómara og aðstandenda eru t.d. Erwin Lauterbach, Hans Beck Tomsen, Mathias Dalhgren, Charles Tjessem, Hans Valimaki ofl. allt gríðarlega þekktir menn í sínum heimalöndum og skandinavíu fyrir veitingastaði sína og matreiðslu.
Látum myndirnar tala sínu máli en lesa má um keppnina og hráefnið á heimasíðu keppninar ( www.nordicchallenge.dk )

Gunnar Karl Gíslason, yfirmatreiðslumaður á Dill restaurant
Forréttur/Fiskréttur

Gunnar Karl Gíslason
Kjötréttur

Gunnar Karl Gíslason
Eftirréttur

Hallgrímur Friðrik Sigurðarson, yfirmatreiðslumaður á restaurant Friðrik V á Akureyri
Forréttur/Fiskréttur

Hallgrímur Friðrik Sigurðarson
Kjötréttur

Hallgrímur Friðrik Sigurðarson
Eftirréttur

T.v. Sigurður Gíslason, Hákon Már Örvarsson og Stefán Viðarsson

Kjartan Marinó Kjartanson

Gunnar Karl Gíslason, yfirmatreiðslumaður á Dill restaurant


Hallgrímur Friðrik Sigurðarson, yfirmatreiðslumaður á restaurant Friðrik V á Akureyri


Stefán Ingi Svansson

Myndir og texti: Matthías þórarinsson, matreiðslumeistari
-
Keppni3 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt2 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu



