Markaðurinn
Innnes og Vínnes sameinast
Systurfélögin Innnes ehf. og Vínnes ehf. hafa verið sameinuð undir nafni Innnes frá og með 1. október.
Innnes, sem nýlega tók í notkun fullkomnasta vöruhús landsins, hefur um árabil verið leiðandi heildsala á Íslandi. Í vöruflóru fyrirtækisins má finna mörg heimsþekkt vörumerki sem eru Íslendingum að góðu kunn eins og Heinz, Filippo Berio, Anthon Berg, Extra, Milka, Oreo, Philadelphia, Oatly og Ritz svo sitthvað sé nefnt.
Vínnes hefur vaxið hratt undanfarin ár og er fyrirtækið orðið einn stærsti áfengisheildsali landsins. Í vöruflóru Vínnes má einnig finna heimsleiðandi vörmerki sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Þar má nefna vörumerki eins og Stella Artois, Corona, The Macallan, Rémy Martin, Cointreau, Jim Beam, Stroh, Muga, Cune, Saint Clair og Pol Roger Champagne.
Áætlað er að sameinað félag verði með um 15 milljarða í ársveltu og yfir 200 starfsmenn.
„Með sameiningu Innnes og Vínnes undir nafni Innnes hefur orðið til ein áhugaverðasta og sterkasta heildsala landsins. Sameinað félag undir nafni Innnes er í senn gríðarlega öflugt og í einstakri stöðu til að þjónusta viðskiptavini fyrirtækisins í þægindaverslunum, stórmörkuðum, á hótelum, veitingastöðum og mötuneytum um allt land.
Dýpt og breidd sameinaðs vöruúrvals og sameinaðir kraftar í sölu- og markaðsstarfi ásamt nýju hátæknivæddu vöruhúsi gefa okkur kost á að veita viðskiptavinum okkar heildarlausn hvort sem það kemur að áfengi, kaffi eða matvöru,“
segja Magnús Óli Ólafsson forstjóri Innnes og Birkir Ívar Guðmundsson aðstoðarforstjóri Innnes í sameiginlegri tilkynningu.
Sameiningin hefur engin áhrif á viðskiptavini Innnes eða Vínnes. Starfsfólk Innnes mun áfram leggja höfuðáherslu á þjónustulipurð, góð persónuleg samskipti og nákvæma afgreiðslu pantana.
-
Frétt2 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt5 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars






