Markaðurinn
Innnes býður til kynningar á kryddum frá Kryta
Innnes í samstarfi við danska kryddframleiðandann Kryta býður til kynningar á kryddum framleiðandans miðvikudaginn 17. September kl. 14. Viðburðurinn fer fram í húsakynnum Innnes að Korngörðum 3.
Frá Kryta kemur meðal annars yfirmaður nýsköpunar hjá fyrirtækinu sem mun leiða kynninguna. Gestum gefst einstakt tækifæri til að kynnast kryddum frá Kryta og fá innblástur að notkun þeirra, beint frá þeim sem þróa blöndurnar.
Öllu áhugasömu fagfólki er boðið að mæta. Í kjölfar kynningarinnar munu gestir kynningarinnar njóta sérkjara hjá Innnes á vörunum frá Kryta í afmarkaðan tíma.
Kryta er danskt fyrirtæki sem var stofnað árið 1955. Það býður upp á fjölbreytt úrval af hreinum kryddum, kryddblöndum og heilum kryddum. Til að tryggja gæðin vinnur Kryta í nánu samstarfi við sína birgja og ferðast reglulega til að skoða ræktun og framleiðslu. Miklar kröfur eru gerðar til þess að vörur þeirra séu ræktaðar og meðhöndlaðar á réttan hátt og við réttar aðstæður til að ná fram sem bestum gæðum.
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




