Frétt
Iceland Hotel Collection by Berjaya og UN Women á Íslandi skrifa undir samstarfssamning
UN Women á Íslandi og Iceland Hotel Collection by Berjaya hafa tekið höndum saman og gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Markmiðið með samstarfinu er að stuðla að menningu jafnréttis innan hótelkeðjunnar Iceland Hotel Collection by Berjaya og að afla fjár til verkefna UN Women á heimsvísu.
Í fréttatilkynningu kemur fram að megintilgangur samstarfsins er að hafa áhrif á framþróun jafnréttismála á heimsvísu sem og innanlands. Ísland er í fararbroddi í jafnréttismálum í heiminum og er mikil fyrirmynd annarra þjóða hvað þessi mál varðar. Íslenskt samfélag lítur á jafnrétti sem grundvallarmannréttindi og forsendu velmegunar, framfara og þróunar. Framfarir í jafnréttismálum eru því miður hægar á heimsvísu og í kjölfar COVID-19 og aukinna átaka í heiminum hefur orðið mikið bakslag í málaflokknum. Samkvæmt nýlegum rannsóknum mun það taka 300 ár að ná fullu kynjajafnrétti í heiminum.
Ferðaþjónustan á Íslandi hefur öðlast aukið mikilvægi síðustu ár og hefur fjöldi ferðafólks sem sækir Ísland heim aldrei verið meiri. Því fylgir ábyrgð að vera fremst á meðal þjóða í kynjajafnrétti og með sameiginlegu átaki ætla UN Women á Íslandi og Iceland Hotel Collection by Berjaya að ná eyrum ferðafólks um mikilvægi jafnréttismála. Hótelkeðjan býður viðskiptavinum sínum að styðja við starf UN Women á Íslandi í gegnum bókunarvél á netinu sem og í gestamóttökum hótelanna. Einnig verður varningur samtakanna seldur í verslunum hótelanna.
Að sama skapi hefur Iceland Hotel Collection by Berjaya undirritað Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact sem er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem snýr að því að auka kynjajafnrétti á vinnustöðum. Í tengslum við Jafnréttissáttmálann mun UN Women á Íslandi koma að áframhaldandi fræðslu fyrir starfsfólk og stjórnendur Iceland Collection by Berjaya um jafnréttismál og tengd málefni en hjá félaginu er unnið öflugt fræðslustarf í málaflokknum.
„Við erum stolt af því að UN Women hafi leitað til okkar með ósk um samstarf. Iceland Hotel Collection by Berjaya er í forystu hvað varðar jafnrétti kynjanna en það er vissulega alltaf hægt að gera betur.
Í samstarfinu felst að vekja athygli gesta á jafnréttismálum og á því hvernig þeir geta lagt sitt af mörkum við framþróun jafnréttis í heiminum. Við hlökkum til samstarfsins við UN Women og til þess að leggja þessum mikilvæga málstað lið.“
Segir Norazman Chung framkvæmdastjóri Iceland Hotel Collection by Berjaya
„Við hjá UN Women á Íslandi erum ótrúlega spennt fyrir samstarfinu við Iceland Hotel Collection by Berjaya. Samstarfið er tilraunaverkefni (pilot) fyrir UN Women á heimsvísu og felur í sér gríðarlega mörg tækifæri sem við erum spennt að sjá raungerast á næstu árum.
Við erum svo innilega þakklát Iceland Hotel Collection by Berjaya fyrir að vera tilbúið að fara með okkur í þessa spennandi vegferð og hafa þannig áhrif á jafnréttismál bæði innanlands sem og fiðrildaáhrif út í heim.“
Segir Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
UM UN Women á Íslandi
UN Women á Íslandi er ein af tólf landsnefndum UN Women, stofnunar Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti og valdeflingu kvenna. Kynjamismunun er rótgróin í öllum samfélögum heims. Á hverjum degi þurfa konur að þola ofbeldi og ójöfnuð, skort á atvinnutækifærum og lægri laun en karlmenn, hljóta hvorki menntun né heilbrigðisþjónustu og fá hvorki sæti við samningaborðið né koma að ákvarðanatökum.
UN Women vinnur að því að breyta þessu með því að veita tæknilegan og fjárhagslegan stuðning til verkefna sem ætlað er að efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum, efla efnahagslegt sjálfstæði, stuðla að afnámi ofbeldis gegn konum og stúlkum sem og tryggja kvenmiðaða neyðaraðstoð.
Að auki vinnur UN Women að því að tryggja réttindi kvenna og stúlkna um allan heim og þrýsta á aðildarríki SÞ taki mið af Kvennasáttmála SÞ (CEDAW) og fylgi framkvæmdaáætlun Peking sáttmálans hvað varðar réttindi kvenna og stúlkna.
Höfuðstöðvar UN Women eru í New York en starfsfólk, sjálfboðaliðar og velunnarar starfa í um 100 löndum. Verkefni UN Women eru unnin í samræmi við svæðisbundinn veruleika í Afríku, Asíu og Kyrrahafinu, Suður Ameríku og Karíbaeyjum og Mið- og Austur Evrópu.
UN Women á Íslandi vinnur að því að vekja athygli almennings á starfi UN Women og á þörfum kvenna í efnaminni löndum, afla fjár til starfsins og hvetja íslensk stjórnvöld til að taka þátt í því.
Meginhlutverk UN Women er:
- Afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum
- Útrýming fátæktar og efnahagsleg valdefling kvenna
- Að efla pólitíska þátttöku kvenna
- Kvenmiðuð neyðaraðstoð og konur, friður og öryggi
Kynntu þér UN Women á Íslandi nánar hér: www.unwomen.is
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Iðunn Mathöll á Akureyri opnar í dag
-
Frétt4 dagar síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Wolt “wrapped” samantektin – Það sem Íslendingar pöntuðu á árinu 2024
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Kalkúnaveisla með öllu tilheyrandi
-
Frétt17 klukkustundir síðan
Atvinnurekanda skylt að greiða matreiðslumanni 1,4 milljónir króna vegna vangreiddra launa
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Frétt3 dagar síðan
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Fallegur og girnilegur jólakrans bar sigur úr býtum