Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Hvanndalir Lodge opnað með glæsibrag í hjarta Ólafsfjarðar
Það var hátíðleg stemning yfir Ólafsfirði föstudaginn 25. júlí síðastliðinn þegar Hvanndalir Lodge var formlega opnað með glæsibrag. Þetta nýja og glæsilega hótel, sem staðsett er við Aðalgötu 14 í Ólafsfirði, sameinar fágaðan stíl, hlýlegt viðmót og kyrrlátt yfirbragð við stórbrotna náttúru Norðurlands.
Með fallegum innréttingum, heilsulind og vandaðri veitingaþjónustu er Hvanndalir Lodge þegar farið að vekja athygli ferðamanna og heimamanna sem ein af nýjustu perlum ferðaþjónustunnar á svæðinu.
Húsið sem hýsir Hvanndalir Lodge var upphaflega byggt árið 1982 og hefur gegnt margvíslegum hlutverkum í gegnum árin. Þar hefur meðal annars verið rekin útibú Sparisjóðs Ólafsfjarðar og síðar Arion banka. Þá muna margir eftir Náttúrugripasafni Ólafsfjarðar sem var til húsa á efri hæðinni.
Nú hefur húsnæðið verið endurnýjað af mikilli fagmennsku og næmni fyrir umhverfinu og sögulegu samhengi þess. Nýtt líf hefur verið blásið í rúmlega 790 fermetra byggingu sem nýtur sín nú sem fágað og persónulegt hótel með heilsulind og veitingastað sem allir eru velkomnir á, óháð því hvort gestir dvelji í gistingu.
Heilsulind sem hvílir hug og líkama
Heilsulind Hvanndala býður upp á einstaka aðstöðu fyrir slökun og endurnæringu. Þar er að finna bæði finnska gufu og innrauða gufu, kalt bað, heitan pott undir berum himni og slökunarsvæði sem opnar innan skamms. Hvort sem gestir koma beint úr fjallgöngu eða sækja staðinn í leit að kyrrð og vellíðan, er umgjörðin sérlega vel útfærð til að skapa jafnvægi og ró.
Gisting með persónulegri nálgun
Á hótelinu eru aðeins sjö herbergi, þar af tvær svítur og eitt fjölskylduherbergi fyrir fjóra. Með þessu er lögð áhersla á gæði og persónulega þjónustu umfram magn. Hvert smáatriði er úthugsað, hvort sem það er náttúrulegt efnisval í innréttingum, sérvalið vín eða róleg stemning heilsulindarinnar.
Starfsfólk leggur metnað í að veita einlæga og hlýlega þjónustu þar sem hver gestur er tekinn á móti sem vinur.
Matseðill með hráefni og hugvit í aðalhlutverki
Veitingastaður Hvanndala býður upp á fjölbreyttan og vel útfærðan matseðil þar sem áhersla er lögð á íslenskt hráefni og smekklega útfærslu. Í forréttum má nefna grafið lambacarpaccio með geitaosti og grillað hjartasalat með gerjuðum paprikum og furuhnetum.
Aðalréttir eru meðal annars bleikja með fennelsalati og kapersósu, hægeldaður lambaskanki með gljáðum gulrótum og nautalund með byggpílaf og tahinisósu.
Fyrir þá sem kjósa grænmetisrétti er meðal annars boðið upp á steikta blómkálssteik með kjúklingabaunum. Eftirréttir eins og súkkulaðibaka með ristuðum möndlum og kaffirjóma, skyr ostakaka með berjum og rabbarbarakaka með granóla benda til þess að metnaðurinn nær óskert til síðasta réttar.
Kokteilar og vínlisti sem gleður bragðlaukana
Barseðill Hvanndala er ekki síður spennandi. Þar má finna kokteila eins og „Tipsy Puffin“, sem samanstendur af íslensku gini, bláberjalíkjör, og „Tequila Tango“ með tequila, bláberjalíkjör og ananas.
Klassískir drykkir á borð við Negroni og Espresso Martini eru einnig í boði ásamt fjölbreyttum og litríku úrvali af víntegundum, þar á meðal úrval frá Casa Rojo á Spáni, Torre Mora frá Sikiley og Ramón Bilbao frá La Rioja.
Mat-, og vínseðlar
Nýr áfangastaður á Norðurlandi
Hvanndalir Lodge er ekki einungis hótel heldur heildræn upplifun sem sameinar náttúru, matarmenningu, vellíðan og þjónustu á einstakan hátt. Með staðsetningu í friðsælu sjávarþorpi, fallegri hönnun og sterkri tengingu við menningu og samfélag staðarins er hótelið dæmi um það besta sem íslensk ferðaþjónusta hefur upp á að bjóða.
Myndir: hvanndalir.is
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís keppir í Bocuse d´Or í stað Hinriks
-
Keppni5 dagar síðanÍslenskir og hollenskir veitingastaðir í úrslitum á National Fish & Chip Awards 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanBrasa tekur á móti fyrstu gestum í Smáratorgi. Sjáðu stemninguna frá opnunarpartýinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVendoro einfaldar pantanir og samskipti í veitingageiranum: Árni Þór Árnason matreiðslumaður segir frá þróun appsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSmassaður jólaborgari með purusteik og camembert sló í gegn – Myndir
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanÓska eftir rekstraraðila fyrir 65 herbergja heilsárshótel á landsbyggðinni
-
Markaðurinn4 dagar síðanParmaskinka á 50% afslætti hjá Stórkaup
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanErt þú aðilinn sem við erum að leita að?

















