Frétt
Huppuís ehf. sektað vegna vöktunar með eftirlitsmyndavélum í starfsmannarými
Persónuvernd hefur lagt stjórnvaldssekt, að fjárhæð 5.000.000 krónur, á Huppuís ehf. vegna rafrænnar vöktunar í einni af fimm ísbúðum fyrirtækisins.
Sjá einnig:
Upphaf málsins má rekja til kvörtunar þáverandi starfsmanns ísbúðarinnar yfir rafrænni vöktun í rými sem starfsmenn, sem margir eru undir lögaldri, nota til að hafa fataskipti og klæðast einkennisfatnaði búðarinnar. Þá var einnig kvartað yfir að merkingum um rafræna vöktun hafi verið ábótavant og að starfsmönnum ísbúðarinnar hafi ekki verið tilkynnt um vöktunina eða þeir fengið fræðslu um réttindi sín varðandi hana.
Var niðurstaða Persónuverndar sú að vinnsla persónuupplýsinga sem fólst í vöktuninni hafi ekki stuðst við fullnægjandi heimild til vinnslu samkvæmt persónuverndarlögum og hvorki hafi verið gætt að gagnsæiskröfu né meðalhófskröfu laganna. Þá er það niðurstaða Persónuverndar að ekki hafi verið gert glögglega viðvart um vöktun með merki eða á annan hátt og að fræðsluskyldu gagnvart starfsmönnum hafi ekki verið gætt. Loks er það niðurstaða Persónuverndar að Huppuís ehf. hafi brotið gegn 5. tölul. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 90/2018 sem fjallar um aðgang Persónuverndar að gögnum, á meðan rannsókn málsins stóð.
Var því 5.000.000 kr. stjórnvaldssekt lögð á Huppuís ehf.
Við ákvörðun sektarinnar var meðal annars litið til þess að umrædd brot voru mörg og beindust gegn einstaklingum undir lögaldri, sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni. Einnig var litið til þess að atvinnurekendur bera fulla ábyrgð á því að rekstur þeirra samrýmist settum lögum og reglum á hverjum tíma og væri þannig skylt að tryggja viðunandi starfsumhverfi og réttindi starfsmanna sinna. Huppuís gæti því ekki borið fyrir sig vanþekkingu á lögum og reglum er það varðar. Þá mat Persónuvernd það til þyngingar að brot Huppuíss vörðuðu hagsmuni barns.
Þá var lagt fyrir Huppuís ehf. að stöðva umrædda vöktun og eyða uppteknu efni úr þeirri eftirlitsmyndavél. Enn fremur var lagt fyrir fyrirtækið að yfirfara og uppfæra verklagsreglur og fræðslu sem starfsmönnum er veitt vegna vöktunarinnar til samræmis við lög nr. 90/2018 og reglugerð (ESB) 2016/679.
Ákvörðun Persónuverndar má nálgast hér.
Uppfært: 20. júní 2021
Tilkynning frá Huppu
Greint var frá því í gær að Persónuvernd hafi sektað fyrirtækið um fimm milljónir króna fyrir að hafa haldið út rafrænni vöktun í einni ísbúð fyrirtækisins. Sagði í ákvörðun Persónuverndar að vöktunin hafi farið fram í rými sem starfsmenn, sem margir eru undir lögaldri, notuðu til fataskipta.
Í tilkynningunni frá Huppu í morgun segir að vöktunin hafi farið fram þar sem ekki hafi verið hægt að „fyrirbyggja umferð óviðkomandi þar sem útidyr á starfsmannainngangi og lager voru ekki alltaf læstar og því var ákveðið að vakta svæðið“.
Lesa má tilkynninguna í heild sinni á visir.is hér.
Mynd: úr safni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Iðunn Mathöll á Akureyri opnar í dag
-
Frétt3 dagar síðan
Atvinnurekanda skylt að greiða matreiðslumanni 1,4 milljónir króna vegna vangreiddra launa
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Veitingastaðurinn MAR opnar á Frakkastíg
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Fljótlegur hátíðareftirréttur – Einfaldasta skyrkaka í heimi
-
Keppni4 dagar síðan
Skráning hafin á Íslandsmót nema og ungsveina í matvæla -og veitingagreinum
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Opnunartími Innnes um jólahátíðina 2024
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðan
Útskriftarnemendur Hótel- og matvælaskólans í MK tóku þátt í ýmsum keppnum og krefjandi verkefnum
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Óáfengir kokteilar frá ISH, danskur framleiðandi