Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Huppu opnar sjöundu ísbúðina
Huppu ætlar að opna sína sjöundu ísbúð í Borgarnesi, en aðrar Huppu ísbúðir eru staðsettar við Eyrarveg 2 Selfoss, Álfheimum 4-6, Spönginni 16 og Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Einnig er Huppu staðsett við Reykjavíkurveg 72 í Hafnafirði og Garðatorg 6B í Garðabæ.
Huppu ísbúðin í Borgarnesi verður staðsett inn af Food Station við Digranesgötu 4.
Telma Finnsdóttir, einn af eigendum Ísbúðar Huppu sagði í samtali við skessuhorn.is að ekki er búið að ákveða formlega opnun í Borgarnesi, en stefnt verður á í miðjan júlí.
Af vef isbudhuppu.is
Ísbúð Huppu er í eigu tveggja vinahjóna frá Selfossi, Eygló Rún Karlsdóttir og Sverrir Rúnarsson og Telma Finnsdóttir og Gunnar Már, en Huppa sjálf var mjólkurkýr mikil frá bóndabæ ömmu og afa eins stofnanda. Fyrsta ísbúð Huppu opnaði dyrnar á fallegum sumardegi 24. júlí 2013 á Eyrarvegi 3, Selfossi. Eftir frábærar viðtökur og mikla eftirspurn var flutt yfir götuna á Eyrarveg 2 í stærra húsnæði þar sem Huppa dafnar vel í dag.
Ísbúð Huppu opnaði svo í Reykjavík þann 22. maí 2015 á hinum fornfræga ísstað Álfheimum 4. Viðtökur þar voru ótrúlegar og augljóst að Reykvíkingar voru meira en tilbúnir í Huppuís. Í byrjun árs 2016 fór Huppa að líta aftur í kringum sig á höfuðborgarsvæðinu og heillaðist af Grafarvoginum og það var þann 2. júní 2016 að Huppa opnaði sína þriðju ísbúð í Spönginni. Í febrúar 2018 kom Huppa sér svo fyrir á stjörnutorgi og opnaði fjórðu huppuna Kringlugestum til mikillar ánægju.
Í júní byrjun 2018 ákvað huppa að fara aðeins út fyrir borgarmörkin aftur og fann sér góðan stað á Garðatorgi í Garðabæ þar sem hennar fimmta ísbúð opnaði.
Mynd: facebook / Ísbúð Huppu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Iðunn Mathöll á Akureyri opnar í dag
-
Frétt3 dagar síðan
Atvinnurekanda skylt að greiða matreiðslumanni 1,4 milljónir króna vegna vangreiddra launa
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Veitingastaðurinn MAR opnar á Frakkastíg
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Fljótlegur hátíðareftirréttur – Einfaldasta skyrkaka í heimi
-
Keppni4 dagar síðan
Skráning hafin á Íslandsmót nema og ungsveina í matvæla -og veitingagreinum
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Opnunartími Innnes um jólahátíðina 2024
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðan
Útskriftarnemendur Hótel- og matvælaskólans í MK tóku þátt í ýmsum keppnum og krefjandi verkefnum
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Óáfengir kokteilar frá ISH, danskur framleiðandi