Freisting
Hollara að nota bygg en hveiti
Hægt er að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Landbúnaðarháskóla Íslands. Í byggi eru trefjaefni sem geta lækkað kólestról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur.
Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís, segir í fréttatilkynningu að hægt sé að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti.
Frá manneldissjónarmiði er mikilvægt að auka magn trefjaefna í fæði Íslendinga. Það er sérstaklega áhugavert að í bygginu eru vatnsleysanleg trefjaefni sem kallast beta-glúkanar. Þessi trefjaefni geta lækkað kólesteról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur.“
Ólafur nefnir að í tilraunabakstri úr byggi, sem hafi farið fram í þremur bakaríum, hafi náðist fullnægjandi árangur fyrir brauð með allt að 40% byggi á móti 60% af hveiti. Það er því hægt að mæla með því að bökunariðnaðurinn fari að nota bygg í framleiðslu sína,“ segir Ólafur í fréttatilkynningu.
Þá var næringargildi metið fyrir íslenskt bygg og reyndist það sambærilegt við það sem gerist erlendis. Öryggi byggs var metið með mælingum á örverum. Kólígerlar, Bacillus cereus og Clostridium perfringens greindust ekki og fjöldi myglusveppa var lágur.
Allar mælingar benda því til að íslenska byggið henti vel til manneldis,“ segir Ólafur Reykdal hjá Matís.
Greint frá á Mbl.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember



