Smári Valtýr Sæbjörnsson
Hamborgarafabrikkan – Veitingarýni – Trufflumatseðill
Hamborgarafabrikkan veitir lifandi og skemmtilega þjónustu og hefur ávallt boðið upp á hágæðamat úr hágæðahráefni og á staðurinn hrós skilið fyrir það. Hjartað í matseðli Hamborgarafabrikkunnar eru ferkantaðir hamborgarar, en þar er líka að finna forrétti, fersk salöt, grísarif svo fátt eitt sé nefnt.
Á hverju ári býður Hamborgarafabrikkan uppá nýjunga t.a.m. hamborgarana Rúdolf, Heiðar og Páskalamborgarinn.
Þessa dagana kynnir Hamborgarafabrikkan trufflumatseðil. SSS sveitin ákvað að kynna sér þetta nánar og mætti á staðinn. Þetta er eingöngu í boði á Höfðatorgi.
Þá er best að kynna hvað er í boði:
120 gramma ungnautahamborgari sem er penslaður mað truffluhunangi. Auk þess er að finna hvítlauksgrillaða sveppi, japanskt trufflumajónes, Boston kál, stökk Serrano skinka og karamelliseraður rauðlaukur. Þetta er svo borið fram í Brioche brauði, að sjálfsögðu ferkantað eins og hamborgarinn, einkenni staðarins.
Með þessu fylgja franskar kartöflur sem stráðar eru með truffludufti. Auk þess er í boði (gegn aukagjaldi) trufflumajónes, trufflubearnaise og truffluhunang.

Stjarnan á Trufflumatseðli Fabrikkunnar er truffluborgari sem fékk nafnið Il Maestro. Um er að ræða heiðursborgara Kristjáns Jóhannssonar óperusöngvara sem bjó og starfaði við sönglist á Ítalíu í hartnær fjóra áratugi.
„Hamborgarinn var mjúkur og safaríkur, greinilega úr góðu og meyru kjöti. Þetta blandaðist svo ágætlega saman með meðlætinu, trufflubragð úr hunanginu kom svo rétt í gegn. Serranoskinkan var stökksteikt, það er umdeilanlegt hvort hún er betri þannig eða steikt með mýkri meðhöndlun.
Frönsku kartöflurnar þarf ekki að ræða, stökkar og fínar eins og við er að búast á þessum stað. Þær voru stráðar með truffludufti, alveg mátulega og yfirgnæfði ekki bragðið af kartöflunum.“
Skyrterta með truffluhunangi
„Skyrtertan var sú hefðbundna sem hefur verið alla tíð á Fabrikkunni og stendur alltaf fyrir sínu. Truffluhunangi var síðan hellt yfir. Tertan var góð, enda vinsæl á staðnum. Það er bara eitt sem mætti hafa í huga þegar hunanginu er bætt við á diskinn þá verður þetta aðeins of sætt. Betra hefði verið að laga sértertu fyrir þetta tilefni með meiri sýru til að virka á móti sætu hunanginu.“
Við komum á mánudegi, mættir klukkan 18:00 og þegar við fórum um klukkan 20:00 var staðurinn orðinn þéttsetinn. Vel gert. Fimm gestir áttu afmæli þetta kvöld, en afmælisbörn fá afmælisís í boði Fabrikkunnar og íslenskt óskalag að eigin vali, alltaf skemmtilegt að vera vitni af slíkum viðburðum.
Á Íslandi eru þrjár Fabrikkur: Á Höfðatorgi, í Kringlunni og á Hótel Kea Akureyri.
Niðurstaða:
Truffluborgaramátíð er svona spari spari og upphefur hina áratuga hamborgaratilurð og viðheldur framþróun þessar afar vinsæla skyndibita sem hamborgarinn er.
Við gengum sælir og létttrufflaðir út í nóttina.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt3 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn6 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni2 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn1 dagur síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Markaðurinn3 dagar síðanGóð þjónusta skiptir sköpum í veitingarekstri





















