Markaðurinn
Gunnlaugur Arnar Ingason frá Kökulist sigraði í Nemakeppni KORNAX 2016
Ellefu bakaranemar tóku þátt í forkeppninni sem fór fram í Hótel- og matvælaskólanum 31. mars – 1. apríl, en fjögur þeirra kepptu til úrslita 8. og 9. apríl. Það voru þau:
- Anna Magnea Valdimarsdóttir- Icelandair Hotels- Natura
- Fannar Sævarsson- Okkar Bakarí
- Gunnlaugur Arnar Ingason – Kökulist
- Jófríður Kristjana Gísladóttir- Kruðerí

Keppendurnir tv. Anna Magnea Valdimarsdóttir, Jófríður Kristjana Gísladóttir, Gunnlaugur Arnar Ingason og Fannar Sævarsson og dómararnir Íris Björk Óskarsdóttir, Birgir Þór Sigurjónsson, Henry Þór Reynirsson og Axel Þorsteinsson
KORNAX stóð fyrir keppninni í samvinnu við bakaradeild Hótel- og matvælaskólans í MK, Landssamband bakarameistara og Klúbb bakarameistara. Keppendur fengu einstakt tækifæri til að auka við faglega færni og öðlast dýrmæta reynslu sem mun nýtast mjög vel í verklegu lokaprófi og sveinsprófi. Vínarbrauð, stór brauð, smábrauð, blautdeig og skrautdeig var meðal þess sem keppt var í.
Keppnin verður sífellt vinsælli frá ári til árs og var keppnin jöfn og spennandi. Afurðir keppenda voru glæsilegar og bakarastéttinni til mikilla sóma. Þeir bakarameistarar sem áttu nema í keppninni geta verið stoltir af fulltrúum sínum.
Dómarar í keppninni voru fjórir og búa allir yfir mikilli fagþekkingu og reynslu, en þeir voru:
- Axel Þorsteinsson – Apotek Restaurant
- Birgir Þór Sigurjónsson- Brauðgerð og Co
- Henry Þór Reynirsson – Reynir bakari
- Íris Björk Óskarsdóttir- 17 Sortir
Pina Colada vínarbrauð og jólaglögg smábrauð
Gunnlaugur hefur tvisvar sinnum áður tekið þátt í Nemakeppni KORNAX og lagði mikla vinnu í að reyna að sigra keppnina í ár.
„Ég var mjög sáttur með það hvernig mér gekk í keppninni. Mjög flottir keppendur voru að keppa við við hlið mér og maður getur aldrei gengið að sigrinum vísum, en mér leið mjög vel í allri keppninni. Allir keppendur stóðu sig frábærlega og er ég mjög stoltur að standa uppi sem sigurvegari“
Hver keppandi valdi sér þema sem hann vann með í gegnum keppnina. Gunnlaugur valdi að hafa kokteilþema og bjó meðal annars til framandi Pina Colada vínarbrauð og jólaglöggs smábrauð.
„Ég hef alltaf haft áhuga á bakstri og matargerð og mér líkar vinnutími bakara. Ég sé ekki eftir því að hafa valið bakaranámið“
segir sigurvegari Nemakeppni KORNAX 2016.
Gunnlaugur fékk að launum KORNAX bikar til eignar, farandbikar frá Klúbbi bakarameistara sem vinningshafi varðveitir í eitt ár og ferðavinning með WOW air. Allir þeir sem kepptu til úrslita fengu gjafabréf á Hamborgarafabrikkuna.
Öllum keppendum er óskað innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Myndir: kornax.is
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni7 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð





