Keppni
Guðmundur og Svala hrepptu titilinn Íslandsmeistarar í brauðtertugerð
Tilkynnt var um verðlaunahafana á Íslandsmeistaramótinu í brauðtertugerð í útgáfuboði Stóru brauðtertubókarinnar í dag, en dagur íslensku brauðtertunnar er einmitt haldinn hátíðlegur í dag, miðvikudaginn 13. nóv.
Stóra brauðtertubókin er nýkomin úr prentun og eftirvæntingin hjá bókaunnendum og er henni dreift í verslanir um land allt. Í bókinni er að finna brauðtertur úr ýmsum áttum ásamt nytsamlegum fróðleik og allskonar skemmtilegheitum.
Það komu fjölmargar uppskriftir inn í keppnina og ekki auðvelt verk að skera úr um hvaða tertur skyldu hreppa hnossið.
En hér koma verðlaunahafarnir:
Fallegasta brauðtertan: Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir fyrir himneska hangikjötstertu.
Frumlegasta brauðtertan: Berglind Ellý Jónsdóttir fyrir róttæka rækju og Ritz-kex tertu.
Bragðbesta brauðtertan: Magnús Ingi Björgvinsson fyrir ljúffenga rækjutertu.
Besta pörunin; brauðterta+kampavín: Ingimar Flóvent Marínósson fyrir túnfisktertu.
Og loks er það Íslandsmeistarinn í brauðtertugerð, það eru þau Guðmundur Kristinsson og tengdamóðir hans Svala Sveinbergsdóttir sem gerðu dásamlega fallega, bragðgóða og haganlega skreytta rækjutertu.
Terturnar er svo allar að finna í Stóru brauðtertubókinni.
Myndir: aðsendar / Karl Petersson
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt7 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað














