Uppskriftir
Grillaður eftirréttur – Ferskju og berja pæ
Ég elska að grilla eftirrétti. Fá smá grillbragð með sætu og súru en þessi eftirréttur er akkúrat þannig í góðu jafnvægi. Svo er mjög sniðugt að nýta eldinn og hitann sem er búið að kveikja upp í til fulls. Mæli svo með að fá sér þeyttan rjóma eða vanilluís með þessu pæi.
Ferskju og berja pæ
Fyrir 8 manns
3 bollar frosin ber að eigin vali (ég notaði svona tilbúna blöndu af berjum)
4 stk ferskjur
Safinn og börkurinn af einni sítrónu
180 g sykur
Skerið ferskjurnar í báta og setjið í skál ásamt berjunum, sykrinum, sítrónusafanum og fínt röspuðum berkinum af sítrónununni. Setjð blönduna í steypujárnspönnu ef þið eigið eða bara álbakka eða eitthvað sem þolir vel hita.
120 g hveiti
2 msk sykur
2 tsk lyftiduft
Smá salt
110 g smjör
120 g súrmjólk
Litlir sykurpúðar
Aðferð:
Blandaðu saman þurrvörunum í skál. Skerðu kalt smjörið niður í kubba og hnoðaðu því saman við þurrvörurnar þar til úr verður svona mylsna. Bættu þá súrmjólkinni út í og blandaðu vel saman.
Dreifðu úr deiginu yfir berjablönduna. Bakaðu svo á grilli með lokinu yfir (eða inní ofni) í 20-30 mínútur. Bættu svo sykurpúðunum yfir í lokin og grillaðu áfram í nokkrar mínútur.

Hrefna Sætran hefur verið meðal fremstu matreiðslumanna landsins um árabil. Hún á og rekur Fiskmarkaðinn, Grillmarkaðinn og Skelfisksmarkaðinn og er eitt þekktasta nafnið í veitingahúsarekstri hérlendis. Hún hefur stýrt og framleitt sjónvarpsþætti á öllum helstu sjónvarpsstöðvum landsins og var meðlimur í, og keppti með, kokkalandsliðinu til fjölda ára.
Höfundur: Hrefna Sætran, matreiðslumeistari.
Mynd: facebook / Hrefna Sætran
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London
-
Frétt4 dagar síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri
-
Keppni1 dagur síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Frétt4 dagar síðanErfið tímamót hjá Berjaya en rekstur félagsins heldur áfram
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
-
Markaðurinn5 dagar síðanLokað hjá Mjólkursamsölunni mánudaginn 25. maí



