Frétt
Grænt te innkallað – Varnarefnaleifar af Anthraquinone greindist yfir leyfilegu mörkum í vörunni
Matvælastofnun varar við neyslu á grænu tei Special gunpowder green tea sem fyrirtækið Víetnam market ehf. flytur inn og selur í verslunum sínum vegna varnarefnaleifa af Anthraquinone sem greindist yfir leyfilegu mörkum í vörunni. Varnarefnið er flokkað sem krabbameinsvaldandi og getur haft skaðleg áhrif á heilsu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna og sendar hafa verið út fréttatilkynningar.
Tilkynning barst í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Special Gunpowder Green Tea
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31/12/2024
- Strikamerki: 3379140108783
- Nettómagn: 250 g
- Framleiðsluland: Kína
- Innflytjandi: Vietnam Market ehf., Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Vietnam Market að Bankastræti 11 og Laugavegi 86-94.
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila henni í verslanir Víetnam market gegn endurgreiðslu.
Mynd: mast.is
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember




