Frétt
Gæðabakstur tekur alfarið yfir bakstur fyrir Bæjarins Beztu Pylsur | Björnsbakarí hættir eftir tugi ára
Björnsbakarí hefur bakað öll pylsubrauð fyrir Bæjarins Beztu Pylsur í 78 ár eða alveg frá stofnun matarvagnsins fræga. Nú síðustu árin hefur Gæðabakstur séð um að baka pylsubrauðin um helgar og á öllum rauðum dögum, en stefna fyrirtækjana er að bjóða alltaf upp á fersk og nýbökuð brauð.
Frá og með 1. september 2015 mun Gæðabakstur baka allt fyrir Bæjarins Beztu Pylsur alla daga, allan ársins hring og verður engin breyting á hvað varðar gæði og bragði, enda hefur Gæðabakstur bakað pylsubrauð Bæjarins Beztu Pylsur í fjögur ár.
Þar með hættir Björnsbakarí eins áður segir að baka pylsubrauðin frægu eftir 78 ár. Eigendur á Björnsbakarí á Skúlagötu hafa sett bakaríið á sölu og auglýstu meðal annars í sérblaði Fréttablaðsins Fólkið, laugardaginn 9. maí s.l.
Bæjarins Beztu Pylsur er eitt elsta fyrirtæki miðborgar Reykjavíkur og fagnaði fyrirtækið 70 ára afmæli árið 2007. Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi og það má því segja að fyrirtækið sé alvöru fjölskyldufyrirtæki, en 4 ættliðir hafa starfað hjá Bæjarins Beztu Pylsur frá því árið 1937.
Bæjarins Beztu Pylsur er staðsett á sex stöðum, þ.e. Tryggvagötu á móti Kolaportinu, í Hagkaup í Smáralindinni, Hagkaup í Skeifunni, Holtagörðum, á Stjörnutorgi í Kringlunni og ferðavagninn á Eiðistorgi.
Til gamans má geta að á lista Thrilllist sem birtur var nú á dögunum yfir götumat sem bestur er í öllum heiminum er Reykjavík í 13. sæti og ber þar að þakka Bæjarins Beztu Pylsum, en þar segir meðal annars:
Iceland might not be known as a street-food mecca, but they’ve got one secret weapon that earned them a solid place on this list. It’s Bæjarins Beztu Pylsur
Endum hér með gömlum auglýsingum frá Bæjarins Beztu Pylsum:
-
Frétt3 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Frétt6 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni3 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni3 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn4 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars






