Viðtöl, örfréttir & frumraun
Fyrsti rampurinn í átakinu Römpum upp Ísland tekinn í notkun hjá Matkránni

Hvergerðingurinn Kristján Birgisson vígði fyrsta rampinn fyrir framan Matkrána.
Með Kristjáni á mynd eru veitingahjónin Guðmundur Guðjónsson og Jakob Jakobsson, sem reka og eiga Matkrána í Hveragerði.
Ramparnir eru ætlaðir til að veita hreyfihömluðum aukið aðgengi að verslun og þjónustu en stofnaður var sjóður með aðkomu fyrirtækja og aðila sem munu standa straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu. Það var Hvergerðingurinn Kristján Birgisson sem vígði rampinn.
„Þetta er auðvitað aðdáunarvert í alla staði. Við sáum það að mikill áhugi var fyrir römpunum í Reykjavík og því ekki óeðlilegt að það smiti út frá sér til annarra sveitarfélaga. Ég á ekki von á öðru en að vel verði tekið í verkefnið um allt land og ég hlakka til þess að veita því brautargengi í framtíðinni,“
sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra.
„Það er mér, fyrir hönd Hvergerðinga, mikið gleðiefni að fyrsti rampurinn í átakinu Römpum upp Ísland skuli vera settur upp hér í Hveragerði. Hér er um einstakt átak að ræða sem sýnir djúpan skilning á þeim aðstæðum sem hreyfihamlaðir búa við.
Það er afar mikilvægt að við í sameiningu reynum að útrýma öllum þeim hindrunum sem komið geta í veg fyrir að þeir sem bundnir eru við hjólastól geti notið aðgangs að sömu stöðum og þeir sem búa ekki við skerta getu hvað þetta varðar,“
sagði Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar.
Í fyrra voru settir upp 100 rampar í miðborg Reykjavíkur í gegnum verkefnið Römpum upp Reykjavík. Gekk verkefnið vonum framar en smíði á römpunum lauk þremur mánuðum á undan áætlun og undir kostnaðaráætlun.
Römpum upp Ísland er verkefni sem miðaði að því að setja upp 1.000 rampa á næstu 4 árum. Stofnaður var sjóður með aðkomu fjölmargra fyrirtækja og aðila sem munu standa straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu. Með römpunum er öllum gert kleift að sækja veitingastaði og verslanir þátttakenda á landinu öllu. Unnið verður í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvalda. Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins.
Mynd: stjornarradid.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or14 klukkustundir síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt4 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi





