Markaðurinn
Fjölmennur fundur vegna kjarasamningsviðræðna sem fram undan eru
Samninganefndir félaganna fjögurra í Húsi fagfélaganna; RSÍ, VM, MATVÍS og Byggiðnar funduðu á þriðjudaginn. Fundurinn var fyrsti sameiginlegi fundur samninganefndanna vegna þeirra kjarasamningsviðræðna sem fram undan eru. Kjarasamningar við Samtök atvinnulífsins verða lausir 1. febrúar 2024. Um fjörutíu manns sátu fundinn, að því er fram kemur á matvis.is.
Tilgangur fundarins var að hefja undirbúninginn með formlegum hætti og þétta raðir iðnaðarfólks fyrir þær viðræður sem fram undan eru.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, setti fundinn og ræddi þær áskoranir sem fram undan eru og þá valkosti sem iðnaðarfólk stendur frammi fyrir í aðdraganda kjaraviðræðna.
Benóný Harðarson, forstöðumaður kjaradeildar Fagfélaganna, kynnti samninganefndum þær efnahagslegu aðstæður sem uppi eru og greindi frá frumniðurstöðum launakönnunar sem félögin stóðu fyrir í sumar. Hann ræddi einnig helstu efnisatriði nýs fjárlagafrumvarps sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti fyrr um daginn.
Fjölmargir tóku til máls á fundinum, jafnt formenn félaganna sem aðrir meðlimir samninganefnda. Umræður um álitamál sem snúa að kjaramálum voru bæði beinskeyttar og hreinskiptar. Ljóst er að hugur er í samninganefndum félaganna og félagsfólk hefur fengið nóg af þeirri umræðu að verðbólguna megi aðallega rekja til kjarabóta vinnandi stétta.
Myndir: matvis.is
-
Frétt5 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Keppni5 dagar síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Keppni5 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Draumurinn hefur alltaf verið að keppa í þessari keppni,“ segir Snædís
-
Markaðurinn6 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanLandslið kjötiðnaðarmanna mætir í MK, opið hús um helgina
-
Markaðurinn2 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir








