Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ertu frumkvöðull í íslenskri matvælaframleiðslu? 20 milljónir í boði fyrir matarfrumkvöðla
Hagar auglýsa eftir umsóknum í nýsköpunarsjóðinn Uppsprettuna. Þetta er í fjórða sinn sem Uppsprettan auglýsir úthlutun og eru allt að 20 milljónir til úthlutunar úr sjóðnum í ár. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar. Þau verkefni sem hljóta styrkveitingu fá jafnframt ráðgjöf og aðstoð við að koma afurðum sínum í verslanir.
Hlutverk Uppsprettunnar er að virkja og styðja frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í íslenskri matvælaframleiðslu. Lögð er sérstök áhersla á stuðning við verkefni sem hafa sjálfbærni að leiðarljósi.
„Eitt af kjarnagildum Haga er að leitast við að hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag í allri sinni starfsemi.
Sjóðurinn leggur því sérstaka áherslu á stuðning við nýsköpunarverkefni í matvælaframleiðslu sem að taka tillit til sjálfbærni, þar sem hugað er að umhverfisáhrifum við framleiðslu og dreifingu sem og betri nýtingar á hráefnum eða minnkun á matarsóun.
Einnig er horft til hvort verkefnið auki verðmætasköpun neytendum til hagsbóta. Að lokum er nýnæmi vörunnar sérstaklega metið og þá hvort að varan sé þegar framleidd á Íslandi “
segir Anton Birkir Sigfússon forstöðumaður sjálfbærni hjá Högum.

Í fyrra fengu tólf íslenskir frumkvöðlar í matvælaframleiðslu 15 milljóna króna styrk frá Uppsprettunni
Alls hafa 32 verkefni hlotið styrk frá því að sjóðurinn var fyrst settur á laggirnar árið 2021 og eru verkefnin afar fjölbreytt. Þar á meðal má nefna íslenskt kimchi frá Sýru, úrvals sósublöndur úr lerki- og furusveppum frá Villt að vestan og vegan „fiskrétti“ úr plöntuafurðum frá Loki Foods. Allar nánari upplýsingar og yfirlit styrkhafa má finna á heimasíðu sjóðsins uppsprettan.hagar.is.
„Uppsprettan var upphaflega stofnuð til að skapa farveg fyrir þær fjölmörgu hugmyndir sem reglulega berast verslunum Haga. Í gegnum Uppsprettuna fá frumkvöðlar um allt land einstakt tækifæri til að þróa hugmyndir sínar áfram með stuðningi sjóðsins og leiðsögn frá reynslumiklum einstaklingum úr verslun.
Sjóðurinn leggur sérstaka áherslu á að hafa umsóknar- og matsferlið einfalt í þeim tilgangi að virkja góðar hugmyndir í matvælaframleiðslu.
Við viljum því hvetja alla þá sem búa yfir góðri hugmynd að sækja um og skiptir þá ekki höfuðmáli hvort vöruþróunin sé skammt eða langt á veg komin.“
segir Finnur Oddsson forstjóri Haga
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTímamót fyrir íslenska barþjóna með nýjum samstarfssamningi
-
Kokkalandsliðið2 dagar síðanNýr þjálfari kokkalandsliðsins, Georg Arnar leiðir liðið til Lúxemborgar 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands í Hörpu um helgina, fjölbreyttur markaður fyrir veisluborðið og jólagjafir
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólaleikur ársins leitar að frumlegustu jólakræsingu landsins
-
Markaðurinn5 dagar síðanOstakrans sem stelur senunni á jólaborðinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun24 klukkustundir síðanEr þetta besta jólatréð í bænum, á bragðið? – Vídeó
-
Frétt4 dagar síðanAsahi varð fyrir stórfelldri netárás, allt að 1,5 milljón viðskiptavina í hættu
-
Markaðurinn3 dagar síðanOpnunartími Innnes um jólahátíðina – Innnes opening hours during the Christmas holidays






