Vertu memm

Bocuse d´Or

Bocuse d´Or: Guðmundur Bender er nýr aðstoðarmaður Sigurjóns – Viðtal

Birting:

þann

Bocuse d´Or 2023

Guðmundur Halldór Bender
Mynd: Hallur Karlsson

Guðmundur Halldór Bender matreiðslunemi er nýr „Commis“ aðstoðarmaður Sigurjóns í keppniseldhúsinu í Bocuse d’Or úrslitakeppninni sem haldin verður 22. og 23. janúar 2023 í Lyon í Frakklandi.

Guðmundur er þó ekki óreyndur þegar kemur að keppnum í veitingageiranum, en hann keppti í Eftirréttur ársins og lenti þar í 4. sæti árið 2021, hreppti titilinn Matreiðslunemi ársins sama ár og 2. sætið í Norrænu nemakeppninni.

Eins og kunnugt er þá keppti Sigurjón í undankeppni Bocuse d‘Or sem haldin var í Búdapest, dagana 23. og 24. mars s.l. og með Sigurjóni í keppniseldhúsinu var Hugi Rafn Stefánsson.  Guðmundur var aðstoðarmaður þeirra á þeim tíma og er þ.a.l. öllum hnútum kunnugur í Bocuse d’Or.

Norræna nemakeppnin 2022 - Nordic Waiters and Chefs aprentis competition

Norræna nemakeppnin 2022
Guðmundur Halldór Bender og Klara Lind Óskarsdóttir ásamt aðstoðarmanni.
Mynd: Jón Svavarsson

Guðmundur Bender byrjaði að læra fræðin sín á Hótel Sögu árið 2018 og til að auka við þekkingu sína á námstímanum þá starfaði hann meðal annars á veitingastaðnum Sjálandi með Rúnari Pierre og Ólafi Ágústssyni matreiðslumeisturum.

Guðmundur kláraði síðan námstímann sinn á veitingastaðnum Héðni þar sem hann starfaði með Sigurjóni og Sindra Guðbrands og stefnir nú á að fara í þriðja bekkinn í Hótel-, og matvælaskólanum núna í janúar 2023 og sveinsprófið næsta vor.

„Æfingar hafa verið stífar og kröfuharðar alltaf að reyna að ná fullkomnun og erum að reyna koma okkur áfram að ákveðnu markmiði sem gerist smátt og smátt, æfum 6 daga vikunnar í Fastus, en þegar nær dregur erum við að æfa daglega.“

Sagði Guðmundur í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um æfingarnar.

Kokkalandsliðið

Guðmundur var aðstoðarmaður Kokkalandsliðsins sem hreppti 3. sætið á Ólympíuleikunum landsliða í matreiðslu sem haldið var í Stuttgart í Þýskalandi.
Mynd: Þórir Erlingsson

Hvernig stóð það til að þú varst aðstoðarmaður Sigurjóns?

„Ég kynntist Sigurjóni fyrst þegar hann var að þjálfa Kokkalandsliðið 2019, þá var ég aðstoðarmaður með liðinu.  Sigurjón og ég höfum alltaf náð vel saman og þegar hann ætlaði í Bocuse d´Or bauð hann mér að vera með honum í liðinu og ég var fljótur að taka því boði.

Ég vildi vera með í keppniseldhúsinu sjálfu eftir að hafa aðstoðað Sigga Lauf þegar hann var að æfa fyrir Bocuse d´Or keppnina sína.  Og þegar tækifærið kom að því að commis staðan var laus fyrir Lyon, eftir við vorum búnir að keppa í Búdapest, þá stökk ég á það.“

Hvað tekur við eftir Bocuse d´Or?

„Ég ætla að byrja á því að klára þriðja bekkinn og halda aðeins áfram í keppnismatreiðslu, annars tek ég bara einn dag í einu.“

Áttu einhverja fyrirmynd úr íslenska veitingabransanum?

„Það eru nokkur nöfn sem koma strax upp í huga mér og á mikið að þakka; Sigurjón Bragi Geirsson, Siggi Laufdal, Hinrik Örn Halldórsson, Rúnar Pierre, Ólafur Ágústsson, Denis Grbic, Sindri Guðbrandur.  Svo eru margir aðrir mjög góðir og koma til greina.“

Af hverju að læra að verða matreiðslumaður?

„Ég hef alltaf haft gaman á því að elda og þegar ég kláraði tíunda bekkinn, þá fór ég í grunndeildina í MK til að prófa og eftir að ég kláraði grunndeildina, þá fór ég á nemasamning á Hótel Sögu og hef unnið við starfið síðan.“

Sagði Guðmundur hress.

Hver eru þín helstu áhugamál?

„Mín helstu áhugamál eru útivist og hreyfing.  Ég hef mikið gaman af veiði, þá bæði stangveiði og skotveiði. Hestamennskan er líka hlutur sem ég hef alltaf gaman af og ferðast.“

Eitthvað sem þú vilt segja við matreiðslunema sem eru að stíga sín fyrstu skref inn í veitingageirann?

„Það sem ég myndi ráðleggja er að umkringja sig með góða matreiðslumenn, sýna metnað og vilja, líka vera tilbúinn að leggja hart að þér og halda áfram og ekki efast um neitt.“

Sagði Guðmundur að lokum.

Fleiri fréttir af Guðmundi hér.

Bocuse d´Or 2022 - Sigurjón Bragi Geirsson

Sigurjón Bragi í Bocuse d´Or keppninni í Búdapest í mars s.l.
Mynd: facebook / Bocuse d´Or

Um Bocuse d´Or

Bocuse d’Or er allra virtasta matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum og verið haldin síðan 1987 og komast færri þjóðir að enn vilja.

Fyrsti íslenski keppandinn tók þátt árið 1999, en það var Sturla Birgisson og náði hann fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar ávallt verið í efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 og Viktor Örn Andrésson árið 2017 náðu þeir báðir í bronsverðlaun.

24 þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa sigrað forkeppni úr sinni heimsálfu. Bocuse d’Or er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.

Bocuse d’Or 2023 úrslitakeppni verður haldin eins og áður segir dagana 22. og 23. janúar 2023 í Lyon. Þar mun Sigurjón Bragi Geirsson keppa fyrir hönd Íslands.

Liðin 24 sem keppa hafa fimm og hálfan tíma til að búa til, meðal annars, sjávarréttadisk fyrir 15 manns sem samanstendur af eftirfarandi þáttum:

Aðalhráefni: 2 x skötuselur (hauslausir). Hörpuskel til að búa til fyllingu.

Skreyting/meðlæti: Tvær grænmetisskreytingar settar á fatið og eitt skraut af „ragout“ gerð sem sýnir belgjurt frá þátttökulandinu.

Bocuse d´Or 2023

F.v. Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, Guðmundur Halldór Bender, Sigurjón Bragi Geirsson, Friðgeir Ingi Eiríksson og Dagur Hrafn Rúnarsson.
Á myndina vantar: Hinrik Örn Halldórsson og Egill Snær Birgisson

Íslenska liðið

Kandítat: Sigurjón Bragi Geirsson

Aðstoðarmaður Sigurjóns er: Guðmundur Halldór Bender

Aðstoðarmenn:
Dagur Hrafn Rúnarsson
Hinrik Örn Halldórsson
Egill Snær Birgisson

Þjálfari: Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson

Dómari fyrir hönd Íslands: Friðgeir Ingi Eiríksson

Fleiri Bocuse d´or fréttir hér.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið