Markaðurinn
Beaujolais Nouveau – Heimsbyggðin bíður spennt
Á hverju ári myndast ákveðin spenna hjá vínáhugafólki þegar hausta er farið og veturinn nálgast. Þá er nefnilega uppskerutími hjá vínbændum í Frakklandi og allir vilja auðvitað að uppskeran verði betri en sú síðasta þó svo að hún hafi jafnvel verið frábær það ár.
Í Búrgundy-héraðinu í Frakklandi er svæði sem heitir Beaujolais og er það þekkt fyrir léttleikandi vín sem búin eru til úr þrúgunni Gamay.
Þar hefur skapast hefð að fagna nýafstaðinni uppskeru með því að smakka á vínum búin til úr þessari nýju uppskeru þann 18. nóvember ár hvert. Vínin eru auðvitað mjög ung en segja samt mikið til um hvernig uppskeran var og getur sagt til um hvernig vínin koma til með að þróast á næstu misserum og árum.
Trenel er framleiðandi frá Beaujolais sem hefur getið sér gott orð fyrir frábær vín frá þessu svæði og er í eigu hins þekkta vínframleiðanda M.Chapoutier.
Frá og með 18. nóvember er hægt að nálgast Trenel Beaujolais Nouveau 2021 hjá Vínnes og í Vínbúðinni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn7 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanÍslandshótel opna nýja veitingastaði á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju




