Keppni
Arctic Challenge á Akureyri í máli og myndum – Árni Þór: „„Allir í veitingabransanum voru að deyja úr leiðindum“…
Iðan fór á vettvang á keppni Arctic Challenge á Akureyri en keppt var í matreiðslu, kokteilagerð og kjötiðn fyrr í vetur. Árni Þór Árnason matreiðslumaður segir frá tilurð samtakanna og keppninni sjálfri.
Virkilega fróðlegt myndband sem fylgir þar sem fjallað er um Arctic Challenge sem eru félagasamtök stofnuð 2021 á Akureyri með það að markmiði að efla uppbyggingu, fræðslu og ástríðu í matvæla -og veitingagreinum á Norður og Austurlandi.
Vídeó
Matreiðslumennirnir Árni Þór Árnason og Alexander Magnússon stofnuðu samtökin í miðjum heimsfaraldri með það að markmiði að sameina bransann á erfiðum tíma sem einkenndist af lokunum og tekjutapi vegna fjöldatakmarkana.
Ekki bara keppni- líka fræðsla
„Allir í veitingabransanum voru að deyja úr leiðindum,“
segir Árni Þór um Covid tímabilið. Það átti heldur betur eftir að breytast. Athafnasemin blés lífi í matvæla- og veitingagreinar, nemar njóta starfsins og nú þekkist fagfólk betur á Norðurlandi og Austurlandi.
Árni Þór segir samtökin hafa stækkað mikið.
„Fyrsta keppnin var haldin í janúar 2022 og fékk mikinn meðbyr á Norður og Austurlandi. Samhliða keppninni voru haldnir fyrirlestrar og fræðsluviðburðir sem nutu mikilla vinsælda. Við ákváðum að gera þetta bara almennilega.“
Keppt í kjötiðn
Keppnin var haldin þann 2. mars í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Stjórnendur höfðu skýr markmið hvað varðar sjálfbærni og minni matarsóun og gerði þá kröfu á keppendur að huga að þeim þáttum. Ný keppnisgrein leit dagsins ljós, Arctic Butcher, en í ár var í fyrsta sinn keppt í kjötiðn.
Keppendur fengu 3,5 klst. til að sýna færni í úrbeiningu á nautabóg, grísabóg, hálfum lambaskrokk og svo nautaslag. Síðan þurftu þeir að stilla upp í kjötborð. Sigurvegari keppninnar var Davíð Clausen Pétursson og í öðru sæti var Ágúst Sigvaldason.
Fengu 1,5 klst til að gera matseðil
![Vel heppnuð keppni á Akureyri – Úrslit og myndaveisla - Arctic Challenge](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/03/AC2024-468-1024x683.jpg)
Fv. Sumarliði Gíslfjörð aðstoðarmaður Sindra, Sindri Freyr Ingvarsson 1. sæti og Matthías Pétur Davíðsson 2. sæti
Mynd: Sindri Swan
Keppnin Arctic Chef var haldin á sama tíma og þurftu keppendur í þeirri keppni að para sig saman við kjötiðnaðar keppendur og panta hjá þeim þann vöðva sem hann notar svo í aðalréttin í sinni keppni. Fyrir utan kjötið fengu keppendur 1,5 klst. til að gera matseðil eftir að hafa fengið að skoða fyrir framgefið hráefni, að lokinn matseðla gerð héldu keppendur saman í Krónuna þar sem þeir fengu að velja sér ferskt og gott hráefni.
Í keppninni sjálfri áttu keppendur að framreiða 3 rétta matseðil og auk þessa að dæma bragð og útlit þurftu keppendur að passa upp á matarsóun. Keppnin var æsispennandi en að lokum var það Sindri Freyr Ingvarsson sem stóð uppi sem sigurvegari og í öðru sæti var Matthías Pétur Davíðsson.
Núll sóun
![Vel heppnuð keppni á Akureyri – Úrslit og myndaveisla - Arctic Challenge](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2024/03/AC2024-469-1024x683.jpg)
Andri Þór Guðmundsson 3. sæti, Thelma María Heiðarsdóttir 1. sæti og Elmar Freyr Arnaldsson 2. sæti
Mynd: Sindri Swan
Í kokteila keppninni Arctic Mixologist héldu keppendur sýningu þar sem fjöldi keppenda hristu koktila fyrir framan gesti. Þema keppninnar í ár var Núll Sóun „Zero Waist“ og skildu hráefnið var Koskinkorva Vodka og höfðu keppendur 15. mín til undirbúa og framreiða 4 glös.
Strax og búið var að framreiða drykkina þurftu keppendur að taka skriflegt próf. Sigurvegari keppninar í ár var Thelma María Heiðarsdóttir, í öðru sæti var Elmar Freyr Arnaldsson og í því þriðja Andri Þór Guðmundsson.
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Kokkur á miðunum: Guðmundur H. Helgason eldar fyrir áhöfn Breka VE – Fylgist með á Snapchat: Veitingageirinn
-
Keppni1 dagur síðan
Frábær árangur í Global Chef Challenge – Hinrik Örn og Andrés tryggja sér sæti í Global Chef Challenge 2026
-
Keppni2 dagar síðan
Hinrik og Andrés skila glæsilegum réttum í Global Chefs Challenge – Myndir
-
Keppni3 dagar síðan
Ísland vekur athygli með framúrskarandi vegan réttum á Ítalíu
-
Keppni4 dagar síðan
Global Chefs Challenge fer fram á Ítalíu
-
Keppni3 dagar síðan
Fyrsta keppnisdegi Global Chefs Challenge lokið á Ítalíu
-
Markaðurinn11 klukkustundir síðan
Bolla sem kemur skemmtilega á óvart
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Fyrsta grænkera Michelin stjarnan í Bretlandi