Frétt
Allt um sérkenni og sérstöðu vestfirskra matvæla
Mikil vakning er meðal fólks um verðmætin sem liggja í staðbundinni matvælaframleiðslu og áhugi á að vita um uppruna matvæla, kynnast staðbundnum mat og matarvenjum, fer vaxandi. Afurðirnar sem eru framleiddar á Vestfjörðum segja sögu matarmenningar okkar og endurspegla landslagið og umhverfið sem þær eru sprottnar úr.
Vestfjarðastofa hefur unnið að því að kortleggja og greina stöðu matvælaframleiðslu á svæðinu. Til þess að auðvelda veitingafólki, ferðamönnum og almenningi að nálgast vestfirsk gæða matvæli var unninn bæklingur með upplýsingum um þær afurðir sem framleiddar eru á Vestfjörðum. Bæklingurinn inniheldur upplýsingar um framleiðendur og hvernig má nálgast afurðirnar.
Það er von Vestfjarðastofu að afraksturinn verði til þess að auðvelda aðgengi fólks að matvælum úr heimabyggð og gefi fólki tækifæri á að versla beint við framleiðendur.
Skoðið bæklinginn með því að smella hér.
Mynd: úr bæklingi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Vín, drykkir og keppni23 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




