Uncategorized
Áfengisverð hefur hækkað þátt fyrir hagstætt gengi
Þrátt fyrir að mikill hluti áfengis sé keyptur inn til landsins í Bandaríkjadölum hefur það ekki skilað sér til neytenda í lækkuðu vöruverði. Sterkt gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadal ætti að hafa orðið til einhverrar verðlækkunnar en raunin er önnur.
Þegar litið er til verðs á algengu áfengi, sem m.a. er notað til útreikings verðlasvísitölu hjá Hagstofu Íslands sést að verðið hefur lítillega hækkað undanfarin ár, en ekki lækkað hót. Til þess ber þó að líta að innkaupsverð á áfengi er ekki nema lítill hluti útsöluverðs, því opinberar álögur (sérstaklega áfengisgjald, álagning ÁTVR og virðisaukaskattur) eru á bilinu 62-80% eftir vínflokkum.
,,Það hafa fleiri en við haft á orði að sterkt gengi krónunnar hafi ekki skilað sér í lægra vöruverði, segir Jóhannes Gunnarson, formaður Neytendasamtaka Íslands. ,,Það á við um áfengisverð líkt og ýmsa vöru aðra. Þar hefði maður þó haldið að það ætti að vera auðveldara en í ýmsum öðrum vöruflokkum, því ÁTVR hefur ákveðin tök á markaðnum og birgjum sínum í ljósi stöðu sinnar.
Jóhannes segir að Neytendasamtökin hafi í tvígang borið saman þróun á gengi og áfengisverði og gengisþróunin virist illa ætla að skila sér þar sem víðar. ,,Við höfum séð að þetta skilar sér mjög misvel eftir vörutegundum. Þannig hefur gengismunurinn komið berlega fram í verði á heimilistækjum meðan þess sést ekki stað í verði á fatnaði, svo maður taki tvö tæmi af handahófi.
Að sögn Jóhannesar er fylgst grannt með verðþróun á áfengi eins og annarri vöru hjá Neytendasamtökunum. ,,Þetta er hluti af útgjöldum heimilanna og með þeim fylgjumst við. Við sáum það árið 2000 þegar krónan féll mjög skarpt, að verðhækkanir komu beint og strax út í verðlagið. Undafarin ár hefur krónan hins vegar styrkt sig mjög, en þá ber svo við að við fáum bara langar afsakanir fyrir því af hverju lækkanirnar skila sér svona seint og illa. Það gengur ekki upp og menn eru einfaldlega að taka sér hærri álagningu en áður.
Þessi frétt birtist í Blaðinu, 9. janúar 2006
Heiðar Birnir Kristjánsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Saga barónanna lifir – Veitingahúsið Hornið heldur upp á 46 ára afmæli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Viðskiptavinir okkar eiga skilið að hafa valkost: Segir Sigurður um ákvörðun MooGoo að vera opinn allt árið
-
Frétt4 dagar síðan
Jamie Oliver rífur þögnina um erfitt samband sitt við Marco Pierre White
-
Frétt5 dagar síðan
Launahækkun í næsta launaumslagi – Allir eiga að fá hækkun, hvort sem þeir eru á taxtalaunum eða umsömdum launum
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Fróðlegt námskeið á Tipsý með viskísérfræðingnum Toffa frá Dillon
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Ný bylgja í vínheiminum – Fyrsta áfengislausa vínverslunin opnar í hjarta vínborgarinnar Bordeaux
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðan
Hvað er Heitast á BWW 2025? Sóley Björk og fremstu vínsérfræðingar heims afhjúpa leyndardóma Spænskra vína
-
Frétt5 dagar síðan
Breytingar á reglugerð um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi í samráðsgátt