Vertu memm

Markaðurinn

Þjónn í hlutastarf – Hótel Reykjavík Saga

Birting:

þann

Hótel Reykjavík Saga

Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Íslandshótel óskar að ráða til sín þjóna í veitingadeild á Hótel Reykjavík Sögu í hlutastarf.

Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.

Unnið er á vöktum með 2-2-3 fyrirkomulagi kl 17:00-23:00.

Helstu verkefni:

  • Fagleg móttaka gesta.
  • Almenn þjónusta við borð í veitingasal.
  • Upplýsingagjöf til gesta um matseðil og hráefni.
  • Halda vinnusvæði snyrtilegu og hreinu.
  • Þjónusta við gesti og sala.
  • Samvinna með öðrum deildum til að ná markmiðum í þjónustu gesta.

Hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund.
  • Fagmannleg framkoma, snyrtimennska.
  • Góð samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi.
  • Lágmarksaldur 20 ára.

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Nýtt og glæsilegt hótel, Hótel Reykjavík Saga hefur opnað í Lækjargötu. Hótelið ljáir Lækjargötunni nýjan blæ og hönnunin er nútímaleg og klassísk í senn.

Á hótelinu er einnig að finna veitingastaðinn Fröken Reykjavik kitchen & bar. Hótelið skartar jafnframt tveimur glæsilegum og rúmgóðum þaksvölum með frábæru útsýni.Hlýlegt og sólríkt útisvæði er á bak við hótelið með trjám og bekkjum. Á hótelinu er fyrsta flokks líkamsræktaraðstaða og heilsulind með eimbaði og sánu. Aðgengi er mjög gott þar sem rútustæðið er beint fyrir utan hótelið.

Lærðu meira um Hótel Reykjavík Sögu.

Sótt er um starfið hér.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið