Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Falið leyndarmál í Kringlunni | Sælkeraverslun með hágæðavörur

Birting:

þann

Búsáhöld í Kringlunni

Í Kringlunni á 1. hæð við hliðinni á Dressman er nú kominn vísir af alvöru sælkeraverslun í hluta af rými í hinni rótgrónu verslun Búsáhöld.

Eftir að hafa starfað sem ritstjóri Gestgjafans í 7 ár tók ég, ásamt manni mínum við versluninni árið 2011. Við höfðum strax í byrjun hug á að auka vöruúrval í átt að sælkeravörum samhliða sölu á hágæða búsáhöldum frá m.a. Le Creuset, Zwilling, De Bueyer, Green Pan o.fl.

, sagði Guðrún Hrund Sigurðardóttir í samtali við veitingageirinn.is.

Mikið úrval er af hágæðavörum, nautakjöt Beint frá Býli (ferskt og frosið) sem kemur frá Garðsbúinu í Eyjafjarðarsveit, lund, rib-eye, gúllas, hakk og hamborgara.  Léttsaltaðir þorskhnakkar frá Bolungarvík leynast einnig í frystikistunni innan um ýmis konar villibráð að mestu innflutta þó.  Sérinnflutt krydd frá Bart í Englandi, ýmsar olíur, sinnep, sultur og soð frá ýmsum vörumerkjum allt hágæðavörur.

Nicolas Vahé vörurnar fæst hjá þeim og síðast en ekki síst hinar frægu frönsku Labeyrie vörur, andabringur, foie gras o.fl.  Súrdeigsbrauðin frá Sandholt er nýjasta viðbótin hjá þeim.

Reglulega eru kynningar á vörunum í gangi hjá okkur þar sem fólki gefst kostur á að smakka og fá uppkrift, hluta af þeim vörum sem við erum með til sölu, sem gefur búðinni persónulegt yfirbragð að mati viðskiptavina okkar.

, sagði Guðrún að lokum.

 

Auglýsingapláss

Myndir: Búsáhöld.

/Smári

twitter og instagram icon

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið