Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt hótel við Skógarböðin í Eyjafirði
Íslandshótel og fjárfestar tengdir Skógarböðunum hafa undirritað viljayfirlýsingu um hönnun, uppbyggingu og rekstur fjögurra stjörnu hótels við hlið Skógarbaðanna í Eyjafirði. Hótelið verður með 120 herbergi, fjögurra hæða, auk þakhæðar með útsýni yfir Eyjafjörðinn.
Gert er ráð fyrir að á hótelinu verði glæsilegur veitingastaður, ráðstefnu- og veislusalur ásamt veglegri heilsulind. Þá er horft til þess að stækka baðhluta Skógarbaðanna þannig að hann muni tengjast hótelinu. Reiknað er með að fjárfestingin í hótelinu verði um fimm milljarðar króna og áætlað að það opni á vormánuðum 2026, að því er fram kemur í tilkynningu.
„Þetta er virkilega spennandi verkefni sem við hjá Íslandshótelum hlökkum mikið til að takast á við og bjóða upp á úrvalsgistingu í því fagra umhverfi sem umlykur Skógarböðin.
Íslandshótel halda uppbyggingu sinni áfram og tryggja með þessu enn eina perluna í röð hótela um land allt,“
segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
„Við erum afar spennt fyrir þessu verkefni og stórhuga draumar okkar um hótel tengt við Skógarböðin eru nú að rætast. Við viljum gera okkar til að byggja áfram upp ferðaþjónustu á Norðurlandi, enda getur hótel hér einnig stuðlað að bættum forsendum fyrir millilandaflugi til Akureyrar.
Hótelið verður staðsett í jaðri skógarins í Vaðlareit og mun hafa einstakt útsýni yfir á Akureyri og inn og út Eyjafjörðinn, lengsta fjörð Íslands. Hönnunin er glæsileg, fellur vel að umhverfinu og algjörlega í samræmi við hugmyndir okkar,“
segja Sigríður María Hammer og Finnur Aðalbjörnsson, aðaleigendur Skógarbaðanna.
„Erlendum ferðamönnum á svæðinu fjölgar jafnt og þétt allt árið um kring. Yfir vetrarmánuðina koma einnig þúsundir Íslendinga norður til skammtímadvalar, taka þátt í íþróttamótum eða skella sér á skíði, svo eitthvað sé nefnt.
Að bæta gæðahóteli við Skógarböðin fyrir þá sem heimsækja Eyjafjörð er því ekki aðeins tímabær, heldur einnig kærkomin viðbót og það verður ánægjulegt að fylgjast með áframhaldi uppbyggingu á Norðurlandi,“
segir Davíð Torfi.
Basalt arkitektar, ein reynslumesta stofan hvað varðar hönnun hótela og baðstaða, er hönnunaraðili hótelsins.
Íslandshótel er leiðandi afl í íslenskri ferðaþjónustu og rekur 18 hótel með um 2000 herbergi á lykilstaðsetningum um land allt undir merkjum Fosshótela og Reykjavíkurhótela.
Fyrirtækið er styrk stoð í þessari sívaxandi atvinnugrein og mun halda að vera fyrsti valkostur þeirra sem velja hótelgistingu á Íslandi.
Myndir: aðsendar / Basalt arkitektar
-
Frétt7 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Keppni7 dagar síðanViceman kom, sá og sigraði í Jameson keppninni eftir sex ára hlé – Viðtal
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or19 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum







