Markaðurinn
Ingveldur tekin við sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Dineout
Ingveldur Kristjánsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri rekstrar (COO) hjá Dineout, en um nýja stöðu er að ræða hjá hugbúnaðarfyrirtækinu. Ingveldur mun einna helst sinna daglegum rekstri, áætlanagerð, fjármálum, markaðsmálum og greiningu nýrra tækifæra. Hún hefur þegar hafið störf.
Síðustu sex ár hefur Ingveldur rekið sitt eigið markaðsfyrirtæki og aðstoðað hin ýmsu fyrirtæki, meðal annars Dineout, við að gera sig sýnilegri með stafrænni markaðssetningu.
Hún hefur einnig komið víða við í atvinnulífinu og hefur til að mynda unnið hjá Hagkaup, Marel og Íslandsbanka. Ingveldur er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í markaðsfræði frá sama skóla.
Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri og eigandi Dineout:
„Það er frábært að fá Ingveldi formlega inn í sístækkandi teymi Dineout. Hún þekkir reksturinn afar vel, sem og það umhverfi sem við störfum í enda hefur hún unnið með mér sem sjálfstæður ráðgjafi allt frá stofnun Icelandic Coupons, sem sameinaðist Dineout á síðasta ári.
Nú er fullkominn tími að fá Ingveldi með okkur í lið þar sem fyrirtækið og kúnnahópurinn stækkar ört, á sama tíma og verkefnum fjölgar, bæði hérlendis og erlendis. Hún býr yfir dýrmætri reynslu sem mun nýtast okkur vel í þeim fjölbreyttu og spennandi verkefnum sem framundan eru.”
Ingveldur Kristjánsdóttir, nýr framkvæmdastjóri rekstrar:
„Það hefur verið lyginni líkast að fylgjast með vexti og velgengni Dineout frá því að ég kynntist Ingu Tinnu og fyrirtækinu fyrir nokkrum árum.
Það er því ánægjulegt að fá loks tækifæri til að taka þátt í komandi sókn Dineout sem ætlar sér stóra hluti á markaði sem er í stöðugri þróun og reiðir sig í mun meira mæli á tækni til að auðvelda reksturinn.”
Um Dineout:
Dineout var stofnað árið 2017 af Ingu Tinnu Sigurðardóttur. Hún ásamt Magnúsi Birni Sigurðssyni eru meirihlutaeigendur fyrirtækisins í dag. Fyrirtækið hefur þróað frá grunni kerfi þar sem hægt er að sýsla með allt er viðkemur rekstri veitingastaðar (kráa, bakaría o.fl.) á einum miðlægum stað.
Lausnirnar eru meðal annars borðabókunarkerfi, kassakerfi (sölukerfi), matarpöntunarkerfi (take-away), rafræn gjafbréf, vefsíður, tilboð (coupons), viðburðir, salaleiga og veisluþjónusta.
Notandi getur ráðið því hvaða vörur nýtast rekstrinum hverju sinni og stýrir öllu í einum bakenda sem er mikil hagræðing og sparnaður. Fyrirtækið heldur úti vinsælasta og stærsta markaðstorgi fyrir veitingastaði landsins á dineout.is. Hjá fyrirtækinu starfa nú 16 manns sem vinna meðal annars að hugbúnaðarþróun, sölu og þjónustu.
Ljósmyndari: Marinó Flóvent
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




