Vertu memm

Uppskriftir

Vinsælustu kryddjurtirnar í garðinum

Birting:

þann

Kryddjurtir

  1. Dill Hægt er að rækta dill inni í eldhúsglugga og klippa af því eftir þörfum.
  2. Kerfill er fallegur og er með gott anís bragð.
  3. Garðablóðberg. Garðablóðberg er auk þess notað í pottrétti, kryddolíur og edik, brauð, ferskt í salöt eða sem álegg á brauð svo eitthvað sé nefnt.
  4. Steinselja teinselja þolir illa suðu þannig að nota þarf hana undir lok matreiðslunnar.  Hún hentar í fjölmarga rétti, út á salat, til að strá yfir kartöflur og krydda smjör.
  5. Kóríander.  Það er mikið notað í austurlenskri matargerð.
  6. Graslaukur Þægilegt er að klippa af henni blöð eftir þörfum.
  7. Piparminta. Piparminta er notuð fersk eða þurrkuð til að gera te. Setjið 2 matskeiðar af þurrkuðum blöðum í einn ketil af sjóðandi vatni, látið standa í 15 mín og síið blöðin frá.

Fróðleikur um önnur krydd

Kúmen.  Fræið er notað til að krydda brauð, osta, súrkál, brennivín og einnig má gera með því kúmenkaffi.

Villtur kerfill getur orðið illgresi, það eru nokkrar tegundir, og er ein tegundin með mjög góðu anís bragði og er með mjög falleg blöð til skrauts og salat gerðar.

Fennel. Við nýtum af henni blöð og stöngla sem grænmeti og fræið sem krydd.   Plantan öll ber með sér mildan anískeim. Blöðin eru notuð í salöt, kryddlegi, fiskisúpur og sósur.

Rósmarín.  Það hentar vel að rækta rósmarin í pottum eða kerjum þar sem plantan þolir ágætlega að vaxa við takmarkað rótarrými auk þess sem það er hentugt ef flytja þarf plönturnar á milli staða.

Salvía Þá hentar hún í súpur, sósur og fiskrétti.

Piparrót.  Nota má ung blöð í salöt. Ræktun á piparrót má hefja með því að kaupa sér heillega rót í matvöruverslun og setja niður í garðinn.

Skessujurt er skessujurt líkt við sellerí, oft kölluð villt sellerí. En hún er bragðsterk og varast ber að nota of stóra skammta.

Ætihvönn.  Nú á tímum notum við hvönn fremur sem krydd en grænmeti.

Bjarni Gunnar Kristinsson

Bjarni Gunnar Kristinsson

Það var Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumaður sem tók saman.

Veisluþjónusta

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið