Markaðurinn
Íslenskt staðfest er nýtt upprunamerki fyrir matvörur og blóm

F.v. Hafliði Halldórsson verkefnastjóri markaðssviðs Bændasamtakanna, Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtakanna
Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kynnti nýtt upprunamerki, Íslenskt staðfest, í Hörpu í gær. Merkið á við um vörur sem eru framleiddar og pakkað á Íslandi.
Merkið mun auðvelda neytendum að velja íslenskt, en til að mega nota merkið þurfa framleiðendur að ábyrgjast að hráefni sé íslenskt og framleiðsla hafi farið fram á Íslandi.
Kjöt, egg, sjávarafurðir og mjólk skal í öllum tilfellum vera 100% íslenskt. Allt að 25% innihalds í blönduðum/unnum matvörum má vera innflutt.

Viðburðurinn var haldinn á veitingahúsinu Hnoss í Hörpu. Fanney Dóra Sigurjónsdóttir og hennar fólk sá vel um að umgjörðin væri upp á 10. Með íslenskar afurðir í öllum veitingum- staðfest!
Svar við ósk neytenda:
Neytendur vilja skýrar upplýsingar um uppruna matvöru og betri upprunamerkingar.
Yfirgnæfandi meirihluti vill velja íslenskt.*
• Tæp 90% svarenda telja upprunamerkingar mikilvægar.
• Um 20% svarenda hafa upplifað að hafaverið blekkt við innkaup hvað varðar uppruna matvöru.
• Rúm 70% neytenda segjast óánægðir með að erlendar kjötafurðir séu seldar undir íslenskum vörumerkjum.
• 63% svarenda óska þess að innlendar matvörur verði upprunamerktar.
• Ríflega 80% neytenda kjósa íslenskar vörur í verslunum sé þess kostur.
*Könnun Gallup fyrir Icelandic Lamb 2021
Bændasamtök Íslands eiga og reka merkið. Vottunarstofan Sýni sér um úttektir hjá þeim fyrirtækjum sem kjósa að nota merkið. Enginn má nota merkið nema hafa til þess leyfi sem sótt er um sérstaklega, gangast undir staðal merkisins og uppfylla opinberar kröfur til sinnar starfsemi.
Markmið með merkinu:
• Auka sýnileika og markaðshlutdeild íslenskra afurða.
• Stuðla að því að íslenskar vörur rati á borð neytenda.
• Tengja neytendur betur við frumframleiðendur og auka verðmæti innlendra afurða.
• Fræða neytendur um kosti íslenskra matvæla og verslunar.
• Festa merkið í sessi sem óumdeilt gæðamerki sem má treysta.
Merkið tryggir upprunann, sjá nánar á www.stadfest.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn3 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn2 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt6 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni2 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni2 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast






